Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Laugardagur, 20. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 15:00 0 0°C
Laxárdalsh. 15:00 0 0°C
Vatnsskarð 15:00 0 0°C
Þverárfjall 15:00 0 0°C
Kjalarnes 15:00 0 0°C
Hafnarfjall 15:00 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
27. mars 2024
N 65 39' 32.04" V 20 16' 55.2"
Pistlar | 29. september 2020 - kl. 13:43
Íbúakönnun landshlutanna 2020
Eftir Vífil Karlsson hjá Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi

„Taktu þátt og hafðu áhrif“. Það getur þú gert með því að taka þátt í íbúakönnun landshlutanna sem er nú í gangi um allt land. Þetta er sagt vegna þess að hún hefur hingað til nýst okkur hjá landshlutasamtökunum í að meta og hafa yfirlit yfir raunverulega stöðu okkar á landsbyggðinni. Það hefur mótað áherslur í starfi okkar og breytt forgangsröð þess. Einnig hefur hún nýst inn í hverskonar stefnumótun sem landshlutasamtökin hafa þurft að fara í og leggur því línurnar inn í framtíðina sem er mikilvægt í málum sem vinna þarf stöðugt að yfir langan tíma. Og að síðustu hafa upplýsingarnar nýst okkur í hagsmunabaráttu fyrir landshlutana. Fólk tekur mark á upplýsingum sem koma frá miklum fjölda fólks þar sem söfnun og úrvinnsla er faglega unnin. Þegar menn setjast niður með gögn sem þessi er hlustað.

Íbúakönnun landshlutanna er í gangi þessar vikurnar og verður hægt að svara henni út október. Í könnuninni er spurt hvort fólk sé ánægt með aðbúnað þar sem það býr þjónustu og ýmislegt annað sem skiptir máli fyrir velferð íbúanna. Einnig hvort það hyggist búa áfram þar sem það býr, hvar það sæki vinnu og við hvaða starfsgrein og ýmislegt er varðar vinnumarkaðinn. Könnunin veitir sveitarstjórnarmönnum mikilvægar vísbendingar um forgangsröð í verkefnum sveitarfélagsins og öðrum opinberum aðilum hvar tíma og fjármunum er best varið. Þess vegna er óhætt að segja þetta kjörið tækifæri fyrir íbúa til að gera gott samfélag enn betra.

Ákveðnir aðilar voru valdir af handahófi og fengu þeir tölvupóst föstudaginn 28. ágúst þar sem óskað er eftir þátttöku þeirra. Landshlutasamtökin hvetja alla þá sem lenda í úrtaki að svara spurningakönnuninni til að niðurstöðurnar verði sem marktækastar – hvert svar hefur mikla þýðingu.

Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV) framkvæmdu könnunina fyrst 2004 og síðan þriðja hvert ár. Stöðugt fleiri hafa sóst eftir að taka þátt en þetta er í fyrsta sinn sem könnunin nær til landsins alls.

Samtök sveitarfélaga hafa líka framkvæmt könnun meðal fyrirtækja  ár hvert síðan 2013. Sú könnun nær núna líka til alls landsins og gefur mjög mikilvægar upplýsingar á sama hátt og íbúakönnunin, um stöðu landshlutanna og þróun frá sjónarhóli allra íbúa, fyrirtækja og vinnandi stétta. Vífill Karlsson, hagfræðingur hjá SSV leiðir þessa vinnu í samráði við landshlutasamtökin og hefur komið nálægt framkvæmd þeirra frá upphafi. Stefnt er að því að báðar þessar kannanir verði framkvæmdar reglulega.

Vífill Karlsson

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið