Pistlar | 21. desember 2020 - kl. 10:53
Guð gefi okkur öllum sinn frið
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson

Í Jóhannesarguðspjalli Nýja testamentisins má m.a. finna eftirfarandi orð:

"Því svo elskaði Guð heiminn að hann gaf einkason sinn til þess að hver sem á hann trúir glatist ekki heldur hafi eilíft líf. Guð sendi ekki soninn í heiminn til að dæma heiminn heldur til þess að frelsa hann."

"Hið sanna ljós, sem upplýsir hvern mann, kom nú í heiminn. Hann var í heiminum og heimurinn var orðinn til fyrir hann en heimurinn þekkti hann ekki. Hann kom til eignar sinnar en hans eigið fólk tók ekki við honum. En öllum þeim sem tóku við honum gaf hann rétt til að verða Guðs börn, þeim sem trúa á nafn hans. Orðið varð hold, hann bjó með okkur, fullur náðar og sannleika og við sáum dýrð hans, dýrð sem sonurinn eini á frá föðurnum."

Og Jesús sagði þegar hann var tekinn til starfa, líklega um þrítugt: "Ég er ljós heimsins. Sá sem fylgir mér mun ekki ganga í myrkri heldur hafa ljós lífsins."

Og í bréfi Páls postula til Efesusmanna má jafnframt finna þessi orð: "Því að af náð eruð þið hólpin orðið fyrir trú. Þetta er ekki ykkur að þakka. Það er Guðs gjöf. Ekki byggt á verkum, enginn skal geta miklast af því. Við erum smíð Guðs, sköpuð til góðra verka sem hann hefur áður fyrirbúið til þess að við skyldum leggja stund á þau."

Eitt í Kristi

Við sem það viljum þiggja erum Guðs börn. Við erum eitt í Kristi. Bræður hans og systur, eins og hann orðaði það sjálfur. Ekki þrælar eða þjónar, heldur vinir hans og samherjar.

Jesús sagði: "Frið læt ég ykkur eftir, minn frið gef ég ykkur. Ekki gef ég ykkur eins og heimurinn gefur. Hjarta ykkar skelfist ekki né hræðist. Þetta hef ég talað við ykkur svo að þið eigið frið í mér. Í heiminum hafið þið þrenging. En verið hughraust. Ég hef sigrað heiminn. Ég verð með ykkur alla daga, allt til enda veraldar."

Bæn og óskir

Kærleikans Guð, friðarins og vonarinnar fylli okkur fögnuði á þessum jólum. Og veiti okkur þá auðmýkt að taka við náð hans og því lífi sem henni fylgir og varir að eilífu. Hann gefi okkur að lifa í þakklæti og taka við frelsaranum með eftirvæntingu og af barnslegri einlægni. Höfundur og fullkomnari lífsins gefi okkur fyrir heilagan anda sinn að meðtaka trúna og vonina sem henni fylgir. Kærleikann sem hann vill gefa okkur og friðinn hans sem hann vill fylla okkur af. Opnum hjörtu okkar fyrir jólabarninu sem heimurinn hafði ekki rúm fyrir. Rifjum upp og segum börnunum okkar jólasöguna og minnumst Maríu móður Jesú og Jósefs. Það gerir okkur öll heldur auðmýkri og skárri sem manneskjur.

Guð gefi okkur öllum heilaga hátíð í hjarta, sem aldrei fyrr, við þær aðstæður sem nú ríkja. Sönn og friðsöm jól. Mætti kærleikur Guðs, friður, von og andi jólanna fylgja okkur öllum til farsældar um langa framtíð. Í Jesú nafni. Amen.

Með vonarríkri og einlægri kærleiks- og friðarkveðju.

Lifi lífið!

Höfundur er ljóðskáld og rithöfundur og aðdáandi lífsins.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga