Mars 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 1 | 2 |
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 04:38 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 04:38 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 04:38 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 04:38 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 04:38 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 04:38 | 0 | 0°C |
18. ágúst 2023 Okur, íslenska og illgresiJá komið þið sæl og blessuð. Nöldri er ekki dauður úr öllum æðum þó langt sé um liðið frá síðasta nöldurpistli. Af nógu er að taka í nöldrinu en ég ætla þó aðeins að nefna nokkur atriði að þessu sinni. Fyrst ætla ég að byrja á verðlaginu í Kjörbúðinni okkar hér á Blönduósi. ::Lesa |
Góðir vinir eru eins og stjörnur á himni. Þú hefur þá ekki endilega alltaf fyrir augum en þú veist af þeim. Þú veist að þeir eru þarna. Og veist innst inni að þú þarft á þeim að halda og þeir þurfa á þér að halda.
Líttu endilega reglulega til þeirra því það getur gefið svo ótrúlega mikið. Jafnvel þótt þú skiljir þá ekki alltaf alveg til fulls og þeir ekki þig.
Djúp og varanleg vinátta er nefnilega dýrmætari en veraldlegar viðurkenningar og allt heimsins gull og silfur. Henni þarf ekki endilega alltaf að fylgja svo mörg orð heldur gagnkvæmt traust og raunveruleg umhyggja. Kærleikur sem ekki yfirgefur.
Vinir í raun
Traustir vinir eru ekki sjálfgefnir. Þeir eru Guðs gjöf. Englar sem létta undir og geta skipt sköpum um líðan fólks. Einkum í hremmingum. Þegar heilsan svíkur eða á efri árum þegar fjaðrirnar taka að reytast af hver af annarri. Þá fyrst kemur nefnilega í ljós hverjir eru vinir í raun.
Mundu að með veru þinni getur þú fært sálir fólks upp úr dimmustu kjöllurum og upp á björtustu svalir.
Guð og góðir vinir
Á kvöldin þegar myrkrið læðist að, stigmagnast og kyrrðin tekur völdin. Þá er svo gott að eiga ljúfan vin sem vekur hjá manni von og ekki svíkur, hvað sem á bjátar. Því þegar þú í erfiðleikum átt, upplifir vanmátt eða vonbrigði er gott að koma því í orð og finna vináttuna og samkenndina um sig streyma.
Guð og góðir vinir leiði þig út í vorið. Og vonandi getum við sem allra flest notið sumarsins sem allra best. Því hve himneskt er það veðurfar sem ríkir í þinni fallegu sál og vekur með mér kærleikans bál.
Því vinar- og kærleikshugur er algjörlega ómetanlegur. Ekki síst þegar honum fylgir hlý og hlustandi nærvera og þolinmæði, jafnvel frá ómunatíð. Jafnvel bara í þögninni þegar á reynir og flest sund virðast lokuð.
Kærleikans Guð geymi þig og þína og baði ykkur í ljósinu sínu og umvefji ykkur sínum óviðjafnanlegu ástarörmum. Nú og um ófyrirséða framtíð.
Með vinar- og kærleikskveðju.
- Lifi lífið!
Höfundur er ljóðskáld og rithöfundur og aðdáandi lífsins.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |