Pistlar | 18. mars 2021 - kl. 20:46
Umvefjandi og nærandi nærvera
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson

Fátt ef nokkuð er mikilvægara og dýrmætara en hlý og umvefjandi, umhyggjusöm og nærandi nærvera. Þar sem við fáum að njóta skilnings og við erum um föðmuð í öllum aðstæðum. Hvar sem við komum og hvar sem við erum hverju sinni. Jafnvel líka þegar við erum bara ein með sjálfum okkur.

Mér finnst svo óendanlega þakkarvert og gott að trúa því, vita til þess, skynja og meðtaka að maður sé umfaðmaður af Guði sem skapaði þennan heim, Guði kærleikans, vonarinnar, upprisunnar, lífsins og friðarins. Af höfundi og fullkomnara lífsins.

Ég er líka þeirrar trúar og reyndar alveg viss um að okkur liði mun betur ef við temdum okkur hugarfar auðmýktar gagnvart Guði, því fólki sem við umgöngumst og mætum, núinu, náttúrunni, framtíðinni og eilífðinni. Og lifðum í bæn og þakklæti. Værum uppbyggileg og jákvæð í framkomu og samskiptum og ættum gagnleg samtöl og samskipti með gagnrýnu hugarfari þar sem við sammæltumst um að reyna að sýna skilning og samstöðu. Byggja upp en ekki brjóta niður.

Biðjum og þökkum í auðmýkt

Þökkum fyrir Guðs eilífa faðmlag sem við getum fengið að hvíla í og njóta öllum stundum.

Biðjum þess að okkur mætti auðnast sú náð og blessun að ná að faðma lífsins tré svo við fáum smitast af kærleika frelsarans og borið þann ávöxt sem okkur var ætlað. Verða að ódauðlegum greinum á lífsins tré, hér og nú og um eilífð. Að vera Guði til dýrðar, fólki til blessunar og þannig sjálfum okkur og öðrum til uppbyggingar og heilla.

Og að hinn líknandi, læknandi og lífgefandi kærleikur smitist síðan frá hjarta til hjarta.

Með kærleiks- og friðarkveðju.

- Lifi lífið!

Höfundur er ljóðskáld og rithöfundur og aðdáandi lífsins.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga