Pistlar | 12. maí 2021 - kl. 09:30
Viltu gerast félagsmaður í Krabbameinsfélagi Austur-Húnavatnssýslu?
Frá Krabbameinsfélagi A-Hún.

Af hverju ætti ég að gera það?

Hvað getur Krabbameinsfélag A-Hún. gert fyrir mig?

Flest  þekkjum við einhvern sem hefur þurft að glíma við krabbamein og þar af leiðandi þurft að dvelja fjarri heimili sínu til lengri eða skemmri tíma, með tilheyrandi kostnaði.

Krabbameinsfélag A-Hún. styrkir félagsmenn sína til að mæta kostnaði við leigu á íbúðum KÍ, sjúkrahóteli LSH vegna dvalar fjarri heimili, og styrkir líka maka (fylgdarmann) sjúklinga sem þurfa að leita lækninga erlendis.

Framundan er aðalfundur Krabbameinfélas A-Hún. þann 19. maí á Teni kl. 18.00. Og þangað eru allir velkomnir. Hægt er að ganga í félagið á fundinum eða hafa samband við einhvern úr stjórninni, sem eru:

Sveinfríður Sigurpálsdóttir, formaður, sveinfridur@simnet.is
Péturína Jakobsdóttir, gjaldkeri, petaj@simnet.is
Kristín Sigurðardóttir, ritari, kristinros75@gmail.com
Viktoría Björk Erlendsdóttir, meðstj., viktoria0901@gmail.com
Margrét Einarsdóttir, meðstj., maein@simnet.is

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga