Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 15:50 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 15:50 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 15:50 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 15:50 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 15:50 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 15:50 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Við ætlum að halda aðalfund í Sögufélaginu eftir tvær vikur í Eyvindarstofu Blönduósi, lau. 29. maí kl. 14. Þangað höfum við boðið ritnefndarmönnum frá Húnavöku – ársriti ungmennasambandsins, í því augnamiði að minna á þetta merkilega og mikla starf sem þeir hafa unnið fyrir hérað sitt og héraðsmenn. Tímamót eru hjá Húnavöku, 60 ára útgáfa.
Af stað – til þessa verks - lögðu þeir, gömlu kennararnir mínir og okkar bekkjarsystkinanna í unglingaskólanum, Stefán á Kagaðarhóli og Þorsteinn skólastjóri, voru upphaflega tveir saman en fleiri komu til liðs, tóku viðtöl, hvöttu skáldin til að birta vísur og ljóð, smelltu af myndum, mynduðu ritnefnd og Húnavakan hefur svo birst okkur vor eftir vor – í sextíu ár.
Ingibergur Guðmundsson ritstjóri hefur staðið vaktina hjá Húnavöku í áratugi, kom í ritnefndina 1983 og tók við ritstjórn af Stefáni Á. Jónssyni sem var ritstjóri frá byrjun – eða alls í 48 ár – en hann lést 2009. Ingibergur tók saman – þegar ritið var fimmtíu ára – fylgirit þar sem birtist skrá yfir höfunda, leiðréttingar og andlátsgreinar í ritinu til 2010. Þar var unnið gríðarmikið verk sem gjörbreytti aðgangi að Húnavökunni sem og að gera ritið aðgengileg á netinu – á tímarit.is. Starf þessara góðu og snjöllu manna, beggja ritstjóranna og ritnefndarmanna er geysimikið og hefur þegar skilað stórum fræðasjóði.
Sögufélagið Húnvetningur heldur aðalfundi sína á vorin, en fundurinn féll niður s.l. vor, eins og fjölmargt annað á þessum sóttartímum en nú munum við stefna að fundi, setjast saman, þiggja ráð, hlýðum á nýjar ráðagerðir og tengjum saman krafta. Sitthvað er óunnið sem kann að vera á okkar færi.
Meira efni:
Ljósmyndir úr Húnavöku frá Unnari og Skarphéðni:
https://timarit.is/page/6360126?iabr=on#page/n0/mode/2up/search/h%C3%BAnavaka
https://timarit.is/page/6458059?iabr=on#page/n0/mode/2up/search/h%C3%BAnavaka
https://timarit.is/page/6359830?iabr=on#page/n0/mode/2up/search/h%C3%BAnavaka
Fyrsta opnan í fylgiritinu 2010 með skrá yfir ritnefnd og höfunda:
https://timarit.is/page/6458062?iabr=on#page/n3/mode/2up/search/h%C3%BAnavaka
Ljóð Rúnars Kristjánssonar, Í héraði hjartans: https://timarit.is/page/6359861?iabr=on#page/n31/mode/2up/search/h%C3%BAnavaka
Jóhanna á Akri/Systurnar Guðmundsdætur frá Mjóadal: https://timarit.is/page/6456089#page/n111/mode/2up
Ingi Heiðmar Jónsson
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |