Forsíða Húnavöku 2002
Forsíða Húnavöku 2002
Pistlar | 13. maí 2021 - kl. 16:56
Sögukorn: Fundur í Eyvindarstofu - lau. 29. maí
Eftir Inga Heiðmar Jónsson

Við ætlum að halda aðalfund í Sögufélaginu eftir tvær vikur í Eyvindarstofu Blönduósi, lau. 29. maí kl. 14. Þangað höfum við boðið ritnefndarmönnum frá Húnavöku – ársriti ungmennasambandsins, í því augnamiði að minna á þetta merkilega og mikla starf sem þeir hafa unnið fyrir hérað sitt og héraðsmenn. Tímamót eru hjá Húnavöku, 60 ára útgáfa.

Af stað – til þessa verks - lögðu þeir, gömlu kennararnir mínir og okkar bekkjarsystkinanna í unglingaskólanum, Stefán á Kagaðarhóli og Þorsteinn skólastjóri, voru upphaflega tveir saman en fleiri komu til liðs, tóku viðtöl, hvöttu skáldin til að birta vísur og ljóð, smelltu af myndum, mynduðu ritnefnd og Húnavakan hefur svo birst okkur vor eftir vor – í sextíu ár.

Ingibergur Guðmundsson ritstjóri hefur staðið vaktina hjá Húnavöku í áratugi, kom í ritnefndina 1983 og tók við ritstjórn af Stefáni Á. Jónssyni sem var ritstjóri frá byrjun – eða alls í 48 ár – en hann lést 2009. Ingibergur tók saman – þegar ritið var fimmtíu ára – fylgirit þar sem birtist skrá yfir höfunda, leiðréttingar og andlátsgreinar í ritinu til 2010. Þar var unnið gríðarmikið verk sem gjörbreytti aðgangi að Húnavökunni sem og að gera ritið aðgengileg á netinu –  á tímarit.is. Starf þessara góðu og snjöllu manna, beggja ritstjóranna og ritnefndarmanna er geysimikið og hefur þegar skilað stórum fræðasjóði.

Sögufélagið Húnvetningur heldur aðalfundi sína á vorin, en fundurinn féll niður s.l. vor, eins og fjölmargt annað á þessum sóttartímum en nú munum við stefna að fundi, setjast saman, þiggja ráð, hlýðum á nýjar ráðagerðir og tengjum saman krafta. Sitthvað er óunnið sem kann að vera á okkar færi.

Meira efni:
Ljósmyndir úr Húnavöku frá Unnari og Skarphéðni: 
https://timarit.is/page/6360126?iabr=on#page/n0/mode/2up/search/h%C3%BAnavaka
https://timarit.is/page/6458059?iabr=on#page/n0/mode/2up/search/h%C3%BAnavaka
https://timarit.is/page/6359830?iabr=on#page/n0/mode/2up/search/h%C3%BAnavaka

Fyrsta opnan í fylgiritinu 2010 með skrá yfir ritnefnd og höfunda:
https://timarit.is/page/6458062?iabr=on#page/n3/mode/2up/search/h%C3%BAnavaka

Ljóð Rúnars Kristjánssonar, Í héraði hjartans: https://timarit.is/page/6359861?iabr=on#page/n31/mode/2up/search/h%C3%BAnavaka

Jóhanna á Akri/Systurnar Guðmundsdætur frá Mjóadal: https://timarit.is/page/6456089#page/n111/mode/2up

Ingi Heiðmar Jónsson
 

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga