Pistlar | 30. maí 2021 - kl. 15:06
Sóknarfæri með sameiningu
Eftir Þorleif Ingvarsson

Sameiningarferlið hjá sveitarfélögunum fjórum í Austur Húnavatnsýslu hefur staðið yfir tæp fjögur ár nú er komið að úrslitastundu. Á vefsíðunni hunvetningur.is er afrakstur vinnunnar kynntur og hvet ég alla til að kynna sér þau gögn sem þar liggja fyrir.

Sveitarfélögin  hafa verið í umfangsmiklu samstarfi í mörgum málaflokkum. Það hefur að mörgu leiti gengið ágætlega en felur óhjákvæmilega í sér aukið flækjustig við ákvarðanatöku, dregur úr skilvirkni og gerir yfirsýn á  fjárhagsstöðu sveitarfélaganna flóknari.

Á vegum sveitarfélaganna eru rekinn fjögur byggðasamlög og í stjórnum, ráðum og nefndum  sitja nú rúmlega 100 fulltrúar. Sveitarstjórar eru þrír og 24 fulltrúar sitja í sveitarstjórnum.

Ef af sameiningu verður er gert ráð fyrir 9 fulltrúum í sveitarstjórn og í stjórnum, ráðum og nefndum verði 35-40 manns.

Skipurit fyrir stjórnsýslu verður einfalt og skilvirkt og rafræn stjórnsýsla og upplýsingatækni nýtt til að auka aðgengi íbúanna.

Í tillögu að skipuriti er gert ráð fyrir að stjórnsýslu- og fjármálasvið, þróunarsvið og hafnarmál muni hafa aðalstarfsstöð á Skagaströnd en velferðarsvið, framkvæmdasvið, byggingafulltrúi og slökkviliðsstjóri hafi aðalstarfsstöð á Blönduósi. Lykilstarfsmenn hafi starfsaðstöðu á báðum stöðum.

Áhersla verður lögð á að nefndir sveitarfélagsins séu virkar og áhrif íbúanna á nærumhverfi og staðbundna hagsmuni séu tryggð.

Með sameinuðu sveitarfélagi er hægt að ná fram markvissari áætlanagerð og meiri sérhæfingu starfsmanna. Þannig gefst líka tækifæri til markvissari hagsmunagæslu útávið svo sem við öflun nýrra atvinnutækifæra, framkvæmda og samningagerðar.

Varðandi þjónustu við íbúa svæðisins þá er gert ráð fyrir að núverandi þjónusta haldist og bætt í eftir atvikum jafnframt að sveitarstjórn verði óheimilt að gera verulegar breytingar á grunnþjónustu án samráðs við íbúa á viðkomandi stað. Hvað varðar sérmál sveitanna, fjallskil, skilaréttir, girðingar og refavinnslu þá er gert ráð fyrir þau mál verði unnin með svipuðum hætti og verið hefur.

Undirritaður hefur komið að sameiningarvinnunni sem formaður samstarfsnefndar um sameiningu á fyrra kjörtímabili og síðan í starfshópi um stjórnsýslu og fjármál. Það er sannfæring mín að með sameiningu sveitarfélaganna verði til sveitarfélag sem hefur fjárhagslegan styrk og nógu öfluga stjórnsýslu til að takast á við áskoranir næstu ára.

Þann 5. júní næstkomandi vona ég að Austur Húnvetningar beri gæfu til að samþykkja sameiningu og nýti þau sóknarfæri  sem felast í sameiningu sveitarfélaganna í Austur Húnavatnssýslu.

Þorleifur Ingvarsson, Sólheimum

 

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga