Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Laugardagur, 20. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 05:53 0 0°C
Laxárdalsh. 05:53 0 0°C
Vatnsskarð 05:53 0 0°C
Þverárfjall 05:53 0 0°C
Kjalarnes 05:53 0 0°C
Hafnarfjall 05:53 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
27. mars 2024
71. þáttur. Eftir Jón Torfason
24. mars 2024
N 65 39' 32.04" V 20 16' 55.2"
3/4 af varnarlínu Kormáks Hvatar fyrir leik, “ðinn, Akai og Bjarki.
3/4 af varnarlínu Kormáks Hvatar fyrir leik, “ðinn, Akai og Bjarki.
Pistlar | 07. júní 2021 - kl. 09:05
Kormákur Hvöt vængjum þöndum
Frá ritstjórn Aðdáendasíðu Kormáks

Væntingar Kormáks Hvatar fyrir knattspyrnusumarið voru miklar, enda gengið vel síðastliðin ár. Eftir feilspor í fyrstu umfer, sem hleypti köldu vatni á milli skinns og hörunds sumra aðdáenda, hefur vélin farið að malla. Reyndar mallar hún svo vel að Kormákur Hvöt er þriðja heitasta lið landsins með þrjá sigra í síðustu þremur leikjum. Einu liðin sem hafa gert betur í röð sigurleikja á landinu eru gömlu stórveldin Fram og Valur. Meira má lesa um þetta á okkar rómuðu Aðdáendasíðu Kormáks.

Í þessum fjórum leikjum hafa sumsé unnist þrír, sem gerir Kormák Hvöt þar með að sigursælasta liði Norðurlands með 75% árangur á yfirstandandi leiktíð. Næstir á eftir eru K.A. með 72% árangur og Fjallbyggðingar með 67%. Aðrir minna.

Liðið er farið að smella vel saman og breiddin er meiri en áður. Erlendur liðstyrkur hefur spartlað upp í þau göt sem spörtlunar hafa þurft við. Sigurleikir á móti erfiðum liðum í síðustu leikjum hafa verið einstaklega gefandi, þar sem liðið hefur stjórnað ferðinni en mörkin verið engu fleiri en þurft hefur til. Framundan eru svo nokkrir heimaleikir á Blönduósi, þeir fyrstu þetta árið.

Það er mál innmúraðra að riðill D í fjórðu deild sé sá jafnasti og sterkasti í manna minnum. Öll lið geta unnið næsta og barist er með kjafti og klóm fyrir hverju marki og stigi. Því er vel að Kormákur Hvöt hefur lokið við sirka helming útileikja sinna og bíður í ofvæni eftir að bjóða liðin heim í Húnavatnssýslur. Það er raunar svo að Kormákur Hvöt hefur ekki tapað í síðustu 23 heimaleikjum, sem er lang lengsta óslitna heimaleikjaruna á Íslandi. Framundan er birta í kortunum.

Ekki er nóg með að liðið sé að hala inn stigum, heldur hefur glæsileg ný ásýnd klúbbsins vakið verðskuldaða athygli, langt út fyrir landsteinana. Tekin var sú ákvörðun af stjórn meistaraflokksráðs að fara í heildarmörkun liðsins í fyrsta sinn. Hannað var lógó þar sem Hvítserkur er í forgrunni. Glöggir þekkja að Hvítserkur er einmitt mitt á milli Blönduós og Hvammstanga, þaðan sem liðin tvö koma. Í fyrsta sinn í sögu liðsins voru þá verslaðir búningar fyrir knattspyrnusamlagið, en fram að því höfðu verið notaðir búningar Hvatar eða Kormáks í leiki. Þessir nýju búningar eru úr ekta ítölsku efni, beint frá höfuðstöðvum Errea í Parma á Ítalíu. Sérhannaðir og bleikir að lit, enda á fáum stöðum í heimi fegurra sólarlag en í Húnaþingi. Fagurbleikt á réttum tíma árs og dags, sé horft í há-norður út á reginhaf.

Aðdáendasíðan hvetur alla nær- og fjærsveitunga sem hafa gaman af markasúpum og sigurleikjum til að fjölmenna á næsta heimaleik, þegar Breiðhyltingar í K.B. koma á Blönduós laugardaginn 12. júní klukkan 14:00.

Áfram Kormákur Hvöt, áfram sameinað Húnaþing og áfram Norðurland vestra!

Viðhorf og staðreyndir greinarinnar eru ritstjórnar Aðdáendasíðu Kormáks.

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið