Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Fimmtudagur, 28. mars 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Mars 2024
SMÞMFL
252627282912
3456789
10111213141516
17181920212223
24252627282930
31123456
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 17:22 0 0°C
Laxárdalsh. 17:22 0 0°C
Vatnsskarð 17:22 0 0°C
Þverárfjall 17:22 0 0°C
Kjalarnes 17:22 0 0°C
Hafnarfjall 17:22 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
18. ágúst 2023
Okur, íslenska og illgresi
Já komið þið sæl og blessuð. Nöldri er ekki dauður úr öllum æðum þó langt sé um liðið frá síðasta nöldurpistli. Af nógu er að taka í nöldrinu en ég ætla þó aðeins að nefna nokkur atriði að þessu sinni. Fyrst ætla ég að byrja á verðlaginu í Kjörbúðinni okkar hér á Blönduósi.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
27. mars 2024
71. þáttur. Eftir Jón Torfason
24. mars 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
22. mars 2024
Eftir Bjarna Jónsson
17. mars 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
15. mars 2024
Eftir Bjarna Jónsson
11. mars 2024
N 65 39' 32.04" V 20 16' 55.2"
Pistlar | 12. júlí 2021 - kl. 09:14
Þjóðleiðir Íslands
Eftir Högna Elfar Gylfason

Í aðdraganda alþingiskosninga hefur mikið verið rætt um vegamál og framkvæmdir við þjóðvegi landsins. Þar hefur líklega farið fremstur í flokki háttvirtur samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra sem hreykir sér af þeim framkvæmdum sem í gangi eru í vegakerfi landsins. Ekki hvarflar að mér að draga úr nauðsyn þeirra framkvæmda sem hafnar eru eða ákveðið hefur verið að ráðast í. Hinsvegar eru það þær nauðsynlegu framkvæmdir sem EKKI er verið að sinna sem mig langar að benda á.

Ef skoðað er í hvaða kjördæmi mest er af malarvegum kemur í ljós að það er Norðurland vestra, sama kjördæmi og ár eftir ár hefur verið útundan þegar kemur að útdeilingu fjármuna til vegagerðar og viðhalds vega. Það kemur líka í ljós að viðhald malarvega hefur verið skorið svo mikið niður mörg undanfarin ár að vegir eru að verða ónýtir, sem þá þarfnast endurbygginga með mun meiri tilkostnaði en að halda þeim eðlilega við. Stjórnvöld sem stæra sig af því að vera dugleg að setja fé í vegakerfið mega ekki komast ekki upp með það að setja alla fjármunina í mjög svo takmarkaðan hluta þess, en að sleppa nánast alfarið miklu stærri hluta. Hér í mínu kjördæmi á Norðurlandi vestra, nánar tiltekið í Skagafirði, eru margir malarvegir sem eiga það sameiginlegt að fá lítið og margir hverjir ekkert viðhald. Hér keyrir fólk víða um á stórgrýti burðarlags veganna þar sem á skiptast risastórir jarðfastir steinar og djúpar, krappar holur. Þó eru til mýkri vegir í firðinum, en það er þá helst þar sem ekkert burðarlag er í veginum heldur moldarjarðvegur rétt undir efsta laginu. Þess sjást ágætlega merki á vorin þegar starfsmenn Vegagerðarinnar fara um sveitirnar og setja upp skilti um þungatakmarkanir svo stærri bílar sökkvi ekki á bólakaf í vegina. Skortur margra undangenginna ára á almennilegum ofaníburði er hrópandi.

Nú er það á allra vitorði að vegur sem á hefur verið sett bundið slitlag þarf margfalt minna viðhald en malarvegur og fyrstu árin líklega ekkert. Það er því löngu tímabært að ráðherra málaflokksins með stuðningi þingsins taki á sig rögg og setji stóraukið fjármagn í að setja bundið slitlag á malarvegi landsins. Ekki einasta veldur það sparnaði hjá ríkissjóði til lengri tíma, heldur ekki síður hjá okkur íbúum þessa lands sem margir hverjir búum við þessa vegi… þetta ástand. Þannig mætti koma í veg fyrir ótímabær vírslit/eyðileggingu dekkja, brotna demparagorma, stóraukið slit og skemmdir á undirvagni bílanna og lakki ásamt rúðubrotum sem eru ótrúlega algeng við þessar aðstæður.

Annað viðblasandi verkefni fyrir háttvirtan samgönguráðherra sem hefur gaman af að segja frá afrekum sínum er að setja í gang endurbyggingu og viðhald eldri vega sem hafa þegar verið klæddir bundnu slitlagi. Hér í Skagafirði eru einmitt vegir af slíku tagi, en að aka eftir sumum þeirra er svipað og að skella sér í veglegan rússíbana, þvílíkar holur og stökkpallar eru í þeim. Þá er það víða þannig að máli skiptir hvort frost er eða þýða þar sem stökkpallarnir stækka þegar vetra fer og frost kemur í jörðu, en það getur verið stórhættulegt ef fólk veit ekki af slíku þegar að er komið.

Nú þegar eytt hefur verið stórfé af sköttum bíleigenda í að búa til hjólreiðastíga í höfuðborginni ásamt því að niðurgreiða ferðir með almenningsvögnum hefur háttvirtur samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra ásamt allri ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur ákveðið að eyða tugum þúsunda milljóna í að nýjan ofurstrætó á höfuðborgarsvæðinu. Ekki að þar með sé allt upp talið því það er algjörlega ófyrirséð með framtíðar fjárútlát úr ríkiskassanum í þessa nýju hít sem líklega mun aldrei standa undir sér í rekstri. Nær hefði verið að nota þá fjármuni í betri vegtengingu landsmanna við höfuðborgina með nýrri Sundabraut ásamt því að nútímavæða vegakerfi landsins með bundnu slitlagi. Slíkt átak ætti að fara í forgang með öðrum mikilvægum verkefnum því þörfin er mikil. Til samanburðar og gamans má geta þess að það eru orðin 35 ár síðan undirritaður réði sig sem fjósamann eitt sumar í Danmörku og þá var hver einasti vegaspotti, hver einasta heimreið allsstaðar… malbikuð… það er því tímabært að taka til hendinni i þessum málaflokki. Ef undirrituðum gæfist færi á lífsleiðinni til að hafa áhrif á umbætur í þessum málum stæði ekki á því.

Tökum höndum saman og gerum okkar besta til að vekja athygli allra frambjóðenda til Alþingis Íslendinga á slæmri stöðu vegakerfis landsins… Dropinn holar steininn.

Höfundur er sauðfjárbóndi í Skagafirði og frambjóðandi Miðflokksins í Norðvesturkjördæmi til alþingiskosninga.

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið