Pistlar | 18. júlí 2021 - kl. 08:01
Ástin er svo dýrmæt
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson

Ástin er svo dýrmæt og þakkarverð gjöf. En vissulega vandmeðfarin. Hvað veist þú annars betra en vera umvafin ást, umvefjandi kærleika, umhyggju og hlýju. Jafnvel að fá að hvíla í örmum þess sem þú elskar. Í örmum þess sem þig elskar. Þú finnur þá fljótt hvað kærleikurinn og ástin eru stór, sterk og undursamlög öfl. Þú finnur að þú ert hluti af einhverju. Einhverju meira og dýpra en þú ert sjálf eða sjálfur. Það er bæði ljúft en getur líka verið sárt á stundum en svo óendanlega þakkarvert þegar allt kemur til alls. Þú ert gefandi og þú ert þiggjandi. Þú ert í hlutverki sem þú kannt ekki og ræður ekki endilega mjög vel við en skalt samt endilega takast á við og láta eftir þér að njóta af ástríðu.

Viðkvæm og vandmeðfarin

Ástin er nefnilega ekki umbúðir eða útlit. Og alls ekki eingöngu bara einhver girnd eða losti. Heldur bál sem kviknar. Því báli þarf stöðugt að halda við og leggja í það mikla, þroskandi og heilbrigða vinnu svo glóðin kulni ekki og slokkni.

Ástin má mögulega einnig líkja við ákveðinn galdur. Galdur sem við skiljum ekki en getum upplifað, meðtekið og þegið. Hvílt í, notið og gefið.

Ástin er nefnilega allt í senn svo viðkvæm og vandmeðfarin, brotthætt og sár. En jafnframt svo vermandi og falleg. Ljúf og sönn, djúp, gefandi og varanleg.

Ástin er skjól, vígi og skjöldur. Hún umber, er þolinmóð, styður, uppörvar og hvetur.

Sönn ást tekur samtalið, setur sig í spor, tekur tillit og breiðir yfir lesti og bresti. Hún er gegnheil og svíkur ekki. Hún gefst ekki upp og yfirgefur ekki. Því sönn ást fellur aldrei úr gildi. Hamingja ástarinnar er nefnilega líklega þegar allt kemur til alls fólgin í því að vera saman, standa saman og njóta uppskerunnar saman.

Til hamingju með ástina. Stofnum til hennar, ef við á annað borð finnum okkur í því. Ræktum hana svo vel. Hlúum að henni, vökvum og virðum svo hún virki eins og til var sáð sem best og lengst.

Með vonarríkri sumar- kærleiks- og friðarkveðju.

- Lifi lífið!

Höfundur er ljóðskáld og rithöfundur og aðdáandi lífsins.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga