Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Fimmtudagur, 25. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 10:00 0 0°C
Laxárdalsh. 10:00 0 0°C
Vatnsskarð 10:00 0 0°C
Þverárfjall 10:00 0 0°C
Kjalarnes 10:00 0 0°C
Hafnarfjall 10:00 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
N 65 39' 32.04" V 20 16' 55.2"
Pistlar | 23. júlí 2021 - kl. 22:01
Fjölbreytt atvinna fyrir alla!
Eftir Lilju Rafneyju Magnúsdóttur

Öflugt atvinnulíf er grunnur að sterku samfélagi, á þeim grunni byggjum við öflugt velferðarkerfi með góðri menntun og ríku menningarlífi. Það kom skýrt í ljós í Covid kreppunni þegar fjöldi fólks missti vinnuna, hve mikilvægt það er að byggja upp fjölbreytt atvinnulíf og sýna viðbragðsflýti þegar kreppir að. Við brugðumst við af krafti með öflugum vinnumarkaðsaðgerðum, brúuðum bilið og vorum tilbúin þegar landið byrjaði að rísa að nýju. Það er okkur að takast vel og sýnir að samstilltar aðgerðir verkalýðshreyfingar, atvinnulífsins og ríkisstjórnarinnar með þátttöku almennings í landinu eru að skila árangri. Nú eru aftur blikur á lofti hvað Covid varðar en þá er bara að spýta í lófana og taka enn einn snúninginn, við kunnum sporin og vitum að saman skilum við bestum árangri.

Það er full ástæða til bjartsýni. Á þessu kjörtímabili höfum við verið að styrkja innviði landsins og leggja grunn að enn fjölbreyttara atvinnulífi um land allt með fjármagnaðri öflugri nýsköpunarstefnu sem nær til landsins alls og snertir allar greinar til sjávar og sveita, ferðaþjónustu eða menningu. Það skiptir máli að leyfa öllum atvinnugreinum að þróast og blómstra, stórum sem og smáum því sprotarnir vaxa og verða burðugir, það er mikilvægt í okkar dreifbýla landi að skapa slík skilyrði svo að fjölbreytt fyrirtæki fái blómstrað, skapi störf og efli búsetuskilyrði og atvinnuöryggi.

Með ljósleiðaravæðingu og háhraðatengingum um land allt eru skilyrðin orðin allt önnur til að skapa sér vinnu hvar sem er á landinu og setja niður fyrirtæki eða útibú, þar á hið opinbera að ganga fram með góðu fordæmi, ekki síður en einkaaðilar. Reynslan í Covid hefur sýnt að viljinn er allt sem þarf til að gera alvöru út störfum án staðsetninga.

Ekki síður mikilvæg eru þau störf sem að fyrir eru, og hafa komið til vegna baráttu stjórnmálamanna. Það var því mikið fagnaðarefni nýverið þegar tókst að tryggja afla til Strandveiða út sumarið 2021 og baráttan skilaði sér að lokum. Hvert einasta  starf skiptir miklu máli og mikilvægt að atvinnulífið fái  tækifæri til að nýta staðbundnar auðlindir og tækifæri til atvinnusköpunar á sjálfbærann máta líkt og á við um strandveiðar. Við í VG leggjum alla áherslu á að 48 dagar verði tryggðir til framtíðar með nægum aflaheimildum svo treysta megi strandveiðar enn frekar og skapa nauðsynlegan fyrirsjáanleika við veiðarnar.  Ég tel það  nauðsynlegt að eiða óvissu enda stóð aldrei annað til þegar við breyttum Strandveiðum í dagakerfi árið 2019.

Allt leggst þetta saman og eykur fjölbreytni og styrkir búsetuskilyrði. Ég mun setja atvinnumál, kjör launafólks og starfsskilyrði víðsvegar um landið á oddinn í kosningabaráttunni framundan, ég trúi því að þannig treystum við byggð og búsetu um allt land!

Lilja Rafney Magnúsdóttir alþingismaður VG.

Formaður atvinnuveganefndar.

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið