Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Fimmtudagur, 25. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 16:21 0 0°C
Laxárdalsh. 16:21 0 0°C
Vatnsskarð 16:21 0 0°C
Þverárfjall 16:21 0 0°C
Kjalarnes 16:21 0 0°C
Hafnarfjall 16:21 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
N 65 39' 32.04" V 20 16' 55.2"
Pistlar | 09. september 2021 - kl. 15:37
Lífskjör og velsæld!
Eftir Lilju Rafneyju Magnúsdóttur

Mikilvægara er nú en nokkru sinni að hlusta á áherslur verkalýðshreyfingarinnar. Vinstri græn hafa lagt mikla áherslu að eiga gott samráð við aðila vinnumarkaðarins allt þetta kjörtímabil og Lífskjarasamningarnir voru gerðir með öflugri aðkomu stjórnvalda sem skilað hefur mörgum þjóðþrifamálum í höfn.

Allar þær vinnumarkaðsaðgerðir sem var gripið til sérstaklega vegna Covid voru gerðar að undangengnu samráði við alla þá aðila sem urðu fyrir miklum forsendubresti og atvinnumissi í vegna efnahagsáfalla í kjölfar Covid.

Kjarabarátta þeirra sem lakast standa hefur alltaf verið mér hugleikin enda óx ég upp í verkalýðshreyfingunni á Vestfjörðum. Öflugt samstarf stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins er undirstaða samfélagslegra framfara, raunverulegra kjarabóta og efnahagslegs stöðugleika.

Aðgerðir í húsnæðismálum, þrepaskipt skattkerfi, lágir vextir, lægri kostnaður sjúklinga í heilbrigðiskerfinu, lengra fæðingarorlof, hærri barnabætur og stytting vinnuvikunnar koma ungu fólki og einnig þeim tekjulægri vel. Halda þarf áfram á þessari braut félagslegra umbótamála á komandi kjörtímabili meðal annars með uppbyggingu félagslegs húsnæðis um allt land sem tryggir mannsæmandi og öruggt húsnæði á viðráðanlegum kjörum.

Við viljum vinna áfram gegn fátækt barna með enn öflugra barnabótakerfi sem nær til enn fleiri barnafjölskyldna. Mikilvægt er að skapa öryrkjum fleiri tækifæri til virkari þátttöku í samfélaginu með úrbótum á framfærslukerfi öryrkja. Það er brýnt að endurmeta lágmarks framfærsluviðmið þeirra tekjulægstu í hópi aldraðra og öryrkja og tryggja þeim mannsæmandi afkomu.

Aukin fjárfesting þarf að vera í opinbera heilbrigðiskerfinu sem tryggir gott aðgengi að heilbrigðisþjónustu um land allt. Hvert heilbrigðisumdæmi þarf að tryggja íbúum greitt aðgengi að læknisþjónustu en þar hafa sum svæði borið skertan hlut frá borði og úr því þarf að bæta.

Mikilvægt er að vinna áfram að því að fjölga hjúkrunarrýmum og efla heimaþjónustu við aldraða og gera breytingu á samspili almannatrygginga og lífeyriskerfinu til að auðvelda sveigjanleg starfslok og gera fólki kleift að vinna lengur.

Aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu hefur verið að aukast á vakt VG um land allt og á þeirri braut ætlum við að halda áfram með auknum úrræðum t.d. fyrir ungt fólk og vinna með einmanaleika eldra fólks.

Vinstri græn hafa verið í forystu í heilbrigðismálum á fordæmalausum tímum heimsfaraldurs. Með okkar frábæra heilbrigðisstarfsfólki og því að hlusta á vísindin hefur tekist að byggja upp innviði heilbrigðiskerfisins samhliða því að glíma við Covid faraldurinn þar sem Ísland hefur staðið sig vel með þátttöku allrar þjóðarinnar.

Með hagsmuni samfélagsins alls að leiðarljósi getum við tryggt öllum velsæld. Það er leiðarljós Vinstri grænna.

Lilja Rafney Magnúsdóttir alþingismaður VG Norðvesturkjördæmi.

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið