Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Laugardagur, 20. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 10:30 0 0°C
Laxárdalsh. 10:30 0 0°C
Vatnsskarð 10:30 0 0°C
Þverárfjall 10:30 0 0°C
Kjalarnes 10:30 0 0°C
Hafnarfjall 10:30 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
27. mars 2024
71. þáttur. Eftir Jón Torfason
24. mars 2024
N 65 39' 32.04" V 20 16' 55.2"
Pistlar | 21. september 2021 - kl. 14:04
Róttæk byggðastefna í boði Vinstri grænna
Eftir Bjarna Jónsson

Sem oddviti Vinstri grænna í Norðvesturkjördæmi hef ég á síðustu vikum ferðast um kjördæmið vítt og breitt. Svæðið er fjölbreytt og víðfeðmt og alls staðar gott að búa.  Við þurfum að  hlúa að byggðunum, standa vörð um náttúruna og auðlindirnar sem eru svo ríkulegar og nýta þær með sjálfbærum hætti í þágu íbúanna. Mér eru sérstaklega hugleikin nokkur mál sem að ég vil koma inn á hérna.

Það er og hefur alltaf verið stefna VG að tryggja jöfn tækifæri fólks. Það er að mörgu að hyggja en við Vinstri græn höfum sett okkur róttæka stefnu í byggðamálum sem við teljum að skapi landsmönnum öllum jöfn skilyrði til þátttöku og búsetu með öflugri uppbyggingu innviða. Þannig treystum við búsetu og  sköpum fjölskylduvænt samfélag um land allt. Fyrir því mun ég berjast.

En hvað er ég að tala um?

Ég vil sjá stórátak í samgöngum, sér í lagi þegar kemur að safn,- og tengivegum þannig að góðar samgöngur séu tryggðar innan héraða og að byggðarlög séu tengd betur saman til að gera þau sterkari. Þá þarf að stytta vegalengdir og gera þær greiðfærari. Sú hagræðing sem að hlýst af styttri vegalengdum minnkar ekki aðeins akstur og útblástur heldur tengir hún betur byggðirnar og þéttir atvinnusvæði.

Fjarskipti og háhraðatengingar eru enn víða í ólestri. Til þess að störf án staðsetninga, atvinnuklasar og nýsköpun geri þrifist með góðu móti þurfa þessir innviðir að vera til staðar og einfaldlega til að auka lífsgæði fólks. Ekki hefur verið nóg gert í þessum málaflokki nú undir stjórn samgönguráðherra Framsóknarflokksins og mikilvægt að meiri kraftur verði settur í þetta verkefni.

Þá er orkuöryggi og jöfnun rafmagns,- og húshitunarkostnaðar ofarlega í huga þeirra sem búa við skerta þjónustu eða ójöfn kjör í þeim efnum og mikilvægt að leiðrétta þá mismunun.

Mikilvægt er að gerð verði gangskör að því að gera mun betur í að jafna flutningskostnað á landsbyggðinni til að jafna búsetuskilyrði og til að fyrirtæki sem þar starfa búi ekki við skert starfsumhverfi.

Sköpum tækifærunum farveg

Á landinu öllu eru tækifærin sannarlega til staðar, bæði til lands og sjávar. Við þurfum að skapa þeim farveg og rétt umhverfi. Við viljum efla nýsköpun og þátt skapandi greina í þeirri uppbyggingu sem að við sjáum fyrir okkur um land allt. Á landsbyggðinni eru mikilvæg rannsókna- og þróunarsetur og öflugir háskólar. Þrír þeirra eru í mínu kjördæmi. Háskólarnir gæða samfélagið lífi og rannsóknir og miðlun þekkingar styrkja ekki síst  nærumhverfið. Það er okkar hlutverk að tryggja háskólunum á landsbyggðinni tækifæri til að vaxa og dafna. Þá er fjölbreytt námsval og fjölskylduvænar lausnir á öðrum námsstigum mikilvægar fyrir byggðaþróun og byggðafestu.

Við þurfum að brúa bilið á milli fæðingarorlofs og leikskóla í samstarfi við sveitarfélögin svo að sama aðgengi sé um land allt.

Við þurfum að standa vörð um framhaldsskólana og framhaldsdeildir, þannig að hægt sé að stunda nám í heimabyggð eða næsta nágrenni og ekki síst búa enn betur að iðn- og verknáminu.

Við þurfum að efla hlut skapandi greina út um land en þær veita þekkingu og hæfni til starfa í greinum sem eru í senn vaxandi og fjölbreyttar. Skapandi lausnir verða sífellt mikilvægari eftir því sem fram vindur og viðfangsefni samfélagsins verða stærri og flóknari.

Á landsbyggðinni er frjór jarðvegur fyrir skapandi lausnir og er það mín trú að með fræðilegum og hagnýtum rannsóknum muni fara hönd í hönd staðbundin þekking og nýjar lausnir Starf háskóla á landsbyggðinni er í því tilliti ómetanlegt fyrir framþróun atvinnuvega og nýsköpun, ekki síst í matvælaiðnaði.

Kosningar eru tímamót og þá lítum við til framtíðar. Við Vinstri græn ætlum að standa vörð um velsæld og lífsgæði með innviðauppbyggingu og bættum búsetuskilyrðum um land allt. Á síðustu árum höfum við sýnt það í verki að við getum tekist á við erfiðar áskoranir og leitt samfélagið í gegnum þær. Af sömu áræðni höfum við leitt fjölmörg framfaramál á sviðum heilbrigðismála og náttúruverndar, velferðar og mannréttinda. Á sama hátt getum við leitt samfélagið áfram á öðrum sviðum.

Höfundur er oddviti Vinstri grænna í Norðvesturkjördæmi

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið