Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Fimmtudagur, 25. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 16:23 0 0°C
Laxárdalsh. 16:23 0 0°C
Vatnsskarð 16:23 0 0°C
Þverárfjall 16:23 0 0°C
Kjalarnes 16:23 0 0°C
Hafnarfjall 16:23 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
N 65 39' 32.04" V 20 16' 55.2"
Pistlar | 10. janúar 2022 - kl. 15:38
Andleg orkuskipti og náttúrulegar kærleikslausnir
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson

Ég held að við þurfum nú öll að núllstilla. Hugsa okkar gang, endurræsa. Við erum í raun á hálfgerðum byrjunarreit. Jafnt í trúmálum sem og í umgengni hvert við annað, náttúruna og loftslagið.

Við búum yfir mikilli sögu, hafsjó af þekkingu og reynslu aldanna en erum þó með skammtímaminni. Ekki síst við sem höldum okkur alltaf hafa allt á hreinu og svörin við öllum ráðgátum mannsins.

Ég held að við þurfum öll að taka háttaskiptum með endurnýjun hugarfarsins. Við þurfum nefnilega nauðsynlega á orkuskiptum í mannlegum samskiptum að halda. Hollum og nærandi náttúrulegum kærleikslausnum.

Þar sem við tökum að sjá hvert annað með kærleiksríkum augum Jesú Krists, frelsara þessa heims, sem á uppsprettu sína í hjarta Guðs, höfundar og fullkomnara lífsins.

Endurnýjanleg orka

Við þurfum á þeirri endurnýjanlegu orku að halda frá degi til dags. Hinni einu sönnu lífvænlegu orku sem Jesús Kristur er. Þá einu orku sem varir ekki aðeins á milli staða eða út daginn og ekki aðeins ævinlega heldur eilíflega.

Hjartafylli

Við þurfum að leiðrétta allskonar kúrsa í höfðinu á okkur. Við þurfum að biðja um að fá hjartafylli af frelsaranum, Jesú og heilögum anda hans.

Við þurfum á sálgæslu hvert annars að halda, ekki dómgæslu. Samstöðu, skilningi og stuðningi en ekki hræðsluáróðri og baktali og því að gera lítið úr eða tortryggja hvert annað.

Það sem meðal annars er að fara með okkur er samanburður og öfund. Okkur var aldrei ætlað að vera eins eða með sömu skoðanir en við vorum kölluð til að vera samferða, vera eitt í Kristi Jesú. Lifa í auðmýkt og tillitssemi, virðingu og þakklæti fyrir sköpunina og yfir sigri lífsins.

Þakkir

Um leið og ég bið og óska landsmönnum öllum blessunar Guðs á nýju og spennandi ári, kærleika og friðar vil ég fá að nota tækifærið og þakka fyrir gefandi og uppörvandi samferð á ævinnar vegi fram á þennan dag. 

Með kærleiks- og friðarkveðju, blessunaróskum og bænum.

 - Lifi lífið!

Höfundur er ljóðskáld og rithöfundur og aðdáandi lífsins.

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið