Pistlar | 24. janúar 2022 - kl. 11:42
Svikin við strandveiðarnar og sjávarbyggðirnar
Eftir Eyjólf Ármannsson

„Nýta má strandveiðar til að efla jafnrétti og stuðla að nýliðun í sjávarútvegi. Við viljum efla fjölbreytt útgerðarform með öflugum strandveiðum og byggðatengdum aflaheimildum og koma í veg fyrir mikla samþjöppun svo byggðirnar blómstri.“ Þetta var boðskapur VG í kosningabaráttunni í Norðvesturkjördæmi síðast liðið haust. Hverjar eru efndirnar?

Fyrsta verk sjávarútvegsráðherra VG í nýrri ríkisstjórn er reglugerðarbreyting um að skerða þorskveiðiheimildir til strandveiða næsta sumar. Breytingin er á reglugerð sem tók gildi í ágúst - rétt fyrir kosningar - en með henni eru þorskveiðiheimildir skertar um 1.500 tonn. Heimildir lækka því úr 10.000 tonnum í 8.500. Byggðakvótinn er einnig lækkaður um 874 tonn, úr 4.500 tonnum í 3.626 tonn. Hér er um umtalsverða skerðingu að ræða, sem fer þvert gegn kosningaloforðum VG. Sé einhver í vafa, þá er það svona sem svik og blekkingar líta út.

Strandveiðar hafa reynst vel fyrir hinar dreifðu sjávarbyggðir, þó litlar séu. Strandveiðar valda minnstu raski í hafrýminu og hafa minnsta kolefnisfótsporið. Smábátaútgerð hefur spornað gegn samþjöppun og komið í veg fyrir að fjölbreyttur sjávarútvegur legðist af á landsbyggðinni. En með áframhaldandi stefnu stjórnvalda mun strandveiðar hverfa. Ungt fólk sem vill fara í útgerð mun flytja til Noregs. Enda fer tækifærunum fækkandi á Íslandi.

Ákvörðun sjávarútvegsráðherra um skerðingu þorskveiðiheimilda er óskiljanleg sé mark tekið á kosningabaráttu VG og stefnuskrá flokksins. En hún er hins vegar auðskiljanleg þegar skrif sérhagmunagæslu stórútgerðarinnar og kvótaeigenda eru skoðuð. Vilji þeirra kemur skýrt fram í athugasemdum fulltrúa þeirra við frumvarp til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða (atvinnu- og byggðakvóti). Þar segir:  „Samtökin [SFS] hafa ítrekað lýst þeirri afstöðu að hætta eigi strandveiðum og fella aflamark, sem tekið hefur verið af öðrum og ráðstafað til þessara veiða, undir aflahlutdeildarkerfið.“ Þar á bæ er ekki litið á strandveiðar sem atvinnuveiðar og virðingin fyrir þeim engin. „Samtökin leggja þunga áherslu á að aflamagn til strandveiða verði ekki aukið með neinum hætti á kostnað atvinnuveiðanna.“ Hræðslan við strandveiðarnar er með ólíkindum, og er það ekki af umhyggju SFS fyrir vernd fiskistofna.

Baráttan fyrir frjálsum strandveiðum er réttindabarátta. Barátta fyrir atvinnufrelsi og búseturétti. Takmarkanir á atvinnufrelsi mega ekki ganga lengra en nauðsyn krefur. Aflahámark sem takmarkar fiskveiðar á aðeins að ná til þeirra veiða sem ógna fiskistofnum. Handfæraveiðar ógna ekki fiskistofnum. Þetta er einnig barátta fyrir jöfnum búseturétti og rétti íbúa sjávarbyggðanna á landsbyggðinni, þar sem byggð hefur alla tíð byggst á fiskveiðum. Íbúar sjávarbyggðanna eiga skilið að fá að nýta sjávarauðlindina þannig að fjölskyldur geti lifað af fiskveiðum. Sá réttur verður einungis tryggður með eflingu strandveiða.

Höfundur er þingmaður Flokks fólksins í Norðvesturkjördæmi.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga