Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 04:54 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 04:54 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 04:54 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 04:54 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 04:54 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 04:54 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Það birtist lítill metnaður í þeim lista sem N-hópurinn í Húnavatnshreppi setur fram og ber yfirskriftina Vissir þú. Þegar ég les fyrstu upphrópun Vissir Þú listans, sem hljóðar þannig:
„Vissir þú að tekjur Húnavatnshrepps munu aukast um tug milljónir króna vegna uppbygginga virkjana á næstu árum?," verð ég dapur í huga þegar ég hugsa heim til minnar gömlu sveita yfir því hversu mikil þröngsýni virðist ríkja þar á bæ.
Þrátt fyrir að hafa leitað finn ég hvergi frumkvæði Húnavatnshrepps (að minnsta kosti ekki skipulagt iðnaðarsvæði) í þá veru að byggja upp atvinnurekstur í sinni sveit og héraði sem byggir á því að koma því rafmagni í vinnu í heimabyggð og á Norðurlandi vestra sem er til staðar upp í gamla Svínavatnshreppi og bíður eftir því að komast í vinnu.
Með því að gefa í skyn að uppbygging virkjana sé á næsta leiti í Húnavatnshreppi, án þess að í myndinni sé það sem hér að ofan er sagt um að rafmagnið, sem ekki er lítið af, vinni heima í héraði, er Húnavatnshreppur að gefa í skyn að þar á bæ séu menn búnir að sætta sig við breytingar á flutningskerfinu, svo flytja megi raforkuna burt úr héraði. Sem sagt ef viðgerð á fjárréttinni er tryggð er okkur sama þótt rafmagnið fari burt. Við sendum afkomendur okkar bara í vel launuð tæknistörf annað en í okkar héruð.
Ég hvet Austur-Húnvetninga til þess að snúa bökum saman og hefja sameinaðir vinnu við að byggja upp atvinnulíf sem byggir á þeirri raforku sem er þar til staðar. Ef sú raforka fer burt úr héraði gefst það tækifæri sem þið hafið núna ekki í bráð.
Guðmundur Hagalín
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |