Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Miðvikudagur, 24. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 07:18 0 0°C
Laxárdalsh. 07:18 0 0°C
Vatnsskarð 07:18 0 0°C
Þverárfjall 07:18 0 0°C
Kjalarnes 07:18 0 0°C
Hafnarfjall 07:18 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
N 65 39' 32.04" V 20 16' 55.2"
Pistlar | 11. september 2022 - kl. 18:59
Til þeirra sem misst hafa og syrgja og sakna
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson

Það er svo þungt að missa. Gildir þá einu hvort sem um heilsuna er að ræða, atvinnuna eða hvað þá að missa ástvini, nána vini og félaga eða kært samferðafólk.

Tilveran er skekin á yfirþyrmandi hátt. Angist fyllir hugann. Örvæntingin getur orðið algjör. Tómarúmið hellist yfir og tilgangsleysið virðist blasa við.

Það er svo sárt að sakna. En það er gott að gráta. Tárin eru dýrmætar daggir, perlur úr lind minninganna. Minninga sem tjá kærleika og ást, væntumþykju og þakklæti fyrir liðna tíma. Minninga sem þú einn átt og enginn getur afmáð eða frá þér tekið.

Tárin mýkja og tárin styrkja. Í þeim speglast fegurð minninganna.

Gráttu, því frelsarinn okkar Jesús, okkar eilífi lífgjafi sagði: "Sælir eru sorgbitnir því að þeir munu huggaðir verða."

Þeir eru því sælir sem eiga Krist í hjarta því að þeir munu lífið erfa og eignast framtíð bjarta.

Það missir enginn eins og þú

Saga okkar, samskipti og upplifanir geta verið bæði misjafnar en einnig með svipuðum blæ. Og jafnvel þótt við göngum mögulega öll í gegnum svipaða hluti en þó með okkar hætti þá er alveg víst að það missir enginn eins og þú. Og það syrgir enginn eins og þú. Það saknar enginn eins og þú. Því að enginn er sem þú og enginn kemur í þinn stað. Missir þess sem raunverulega elskar er alltaf mikill. Og þótt andlitið kunni sem betur fer að gleðjast um stund að getur hjartað grátið.

Þeir sem vilja komast hjá því að syrgja og sakna ættu kannski bara að prófa að hætta að elska? Því þeir missa mest sem mikið elska. Sá sem ekki elskar missir ekki neitt en fer herfilega á mis við sýnar fallegustu og bestu tilfinningar og bara tilgang lífsins.

Ólýsanlega fögur blómstrandi blóm umhverfis lind minninganna

Leyfum sorginni bara að hafa sinn gang og fara í sinn eðlilega farveg. Svo mun það gerast, smátt og smátt, að við gefumst upp fyrir henni og minningarnar björtu og góðu komast að. Þær taka við, búa með okkur og taka að tala og birta okkur hinar ljúfustu myndir. Ómetanlega minningar sem enginn getur frá okkur tekið og ekkert strokleður fær þurrkað út eða afmáð.

Að harðasta vetrinum loknum fer nefnilega aftur að vora, þótt ótrúlegt megi virðast og yljandi vindar taka aftur um okkur að leika og litskrúðug ólýsanlega fögur blóm gera vart við sig, hvert af öðru. Þau taka að spretta umhverfis lind minninganna.

Blessaðir séu þeir sem gefa sér tíma til að strjúka vanga og þerra tár af kinn bara með því að faðma og vera.

Með samstöðu- kærleiks- og friðarkveðju.

- Lifi lífið!

Höfundur er ljóðskáld og rithöfundur og aðdáandi lífsins.

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið