Stökuspjall: Hér er ekkert vað!  •   Rúmar 17 milljónir úr húsfriðunarsjóði til Húnavatnssýslna  •   Brjóstamiðstöð Landspítalans er með brjóstaskimun í samstarfi við Heilsugæsluna á Blönduósi 2. - 5. apríl / 2 - 5 Kwiecień  •   Norðaustan hríð í kortunum  •   Íslenskur matur  •   Sögukorn: Vor Vigdísar 1980  •   Húnaþing vestra og ríkið gera samkomulag um uppbyggingu íbúðarhúsnæðis  •   Ert þú næsti verkefnastjóri hjá SSNV?  •  
Mars 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 1 | 2 |
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 04:17 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 04:17 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 04:17 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 04:17 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 04:17 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 04:17 | 0 | 0°C |
18. ágúst 2023 Okur, íslenska og illgresiJá komið þið sæl og blessuð. Nöldri er ekki dauður úr öllum æðum þó langt sé um liðið frá síðasta nöldurpistli. Af nógu er að taka í nöldrinu en ég ætla þó aðeins að nefna nokkur atriði að þessu sinni. Fyrst ætla ég að byrja á verðlaginu í Kjörbúðinni okkar hér á Blönduósi. ::Lesa |
Leita í netfangaskrá
18. mars 2024
Eftir Eyjólf Ármannsson
11. mars 2024
Pistlar | 11. mars 2023 - kl. 22:09
Sögukorn: Ég ann þér af einlægu hjarta ...
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
- Húnavaka, ársrit USAH, kom út í vetur, en litlu munaði að svo yrði ekki og þar með hefði þetta merkisrit lognast út af. Þetta var eitt hefti fyrir 2 ár, árin 2020 og 21.
- Hægt er að panta nýja ritið á usah540(hjá)simnet.is.
- Það liggur mikið verk að baki hverju riti og síðasti ritstjórinn, Skagstrendingurinn Ingibergur var vinnusamur, nákvæmur og ötull. Ingibergur lét af ritstjórastarfi með 60. árgangi, þ.e. fyrir árið 2019.
- Stefán ritstjóri og þau Kagaðarhólshjón lögðu mikið af mörkum til útgáfu og samninga ritsins en þrautseigja Stefáns dugði vel svo ritinu varð lífvænt.
- Nýi ritstjórinn, Magdalena Berglind Björnsdóttir, ávarpar lesendur í nýja ritinu:
- Að fínpússa efnið og færa í letur
frásagnir ykkar og myndug ljóð
Ritnefndin vann þetta svona í vetur
vökulir karlar og iðjusöm fljóð.
- Engin laun greiðast þarna fyrir mikla vinnu sem ritnefnd og þó sérstaklega ritstjóri hafa lagt af mörkum áður en nýtt rit kemst í hendur Húnvetninga og fleiri lesenda.
- En það kom mjög skýrt í ljós á þessum óvissu- og kóvídtímum Húnavökunnar að lesendur vilja endilega fá ritið áfram, lesa og skoða myndir, geta flett þar upp, séð börnin sem fæddust á árinu, verðurfar og mannfjölda, æskulýðs- og íþróttastarf, almenn félagsstörf, menningarmál, menntamál, frá opinberum aðilum, atvinnulíf og svo ýmsar fréttir.
- Og fyrir þetta góða rit, rúmlega 260 bls. og ríkulega prýtt myndum, þurfum við aðeins að greiða 3 þúsund krónur.
- Gömlu kennararnir mínir við unglingaskólann á Blönduósi, þeir Þorsteinn skólastjóri Matthíasson og Stefán Jónsson á Kagaðarhóli stofnuðu héraðsritið Húnavöku 1961 og þeim eigum fyrst að þakka en þeir Stefán og Ingibergur voru ásamt Þorsteini ritstjórar fyrstu 60 árin.
- Þorsteinn var ritstjóri í 5 ár, Stefán 48 ár, Ingibergur 12, en hafði setið áður í ritnefnd í 26 ár.
- Í nýju Húnavöku er úrvalsgott viðtal við Sigríði á Kagaðarhóli, ekkju Stefáns ritstjóra.
Nýi ritstjórinn, Magdalena Berglind tók viðtalið.
Á Kagaðarhóli
Nú lífgrös og laukar skarta.
Lofgjörð því vori syng.
Ég ann þér af einlægu hjarta
ágæta Húnaþing. Sigríður Höskuldsdóttir
Meira efni um/úr Húnavöku:
Eldra sögukorn af USAH og Húnavökuritun: https://www.huni.is/index.php?pid=58&cid=19679 Fylgirit með Húnavöku kom út 2010, þar er höfundaskrá, leiðréttingar o. fl. Unnið af Ingibergi ritstjóra: https://timarit.is/page/6458062iabr=on#page/n3/mode/2up/search/h%C3%BAnavaka
Minningarorð ritnefndar um Stefán ritstjóra á Kagaðarhóli: https://timarit.is/files/44897924 og https://timarit.is/files/44897934
Ingi Heiðmar Jónsson
Mest lesið
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |