Stjórn Vilko
Stjórn Vilko
Fréttir | Pistlar | 12. maí 2023 - kl. 22:08
Fréttir af Vilko ehf.
Frá Gunnari Tr. Halldórssyni

Aðalfundur Vilko ehf. var haldinn á Blönduósi þann 9. maí sl. Velta fyrirtækisins jókst um 57 m.kr. frá fyrra ári og var rúmar 388 m.kr. á árinu 2022. Verulegur viðsnúningur varð í rekstri á liðnu ári, rekstarniðurstaða fyrir fjármagnsliði var jákvæð um 7,5 m.kr. og rekstrarniðurstaða batnaði um u.þ.b. 4 m.kr. milli ára. Fjöldi starfmanna/stöðugilda var 15 árið 2022 á móti 12,7 árið 2021.

Pétur Grétarsson er nýr stjórnarformaður Vilko og tekur við af Jóhannesi Torfasyni sem hefur gengt því hlutverki í 4 ár. Vilko þakkar Jóhannesi vel unnin störf í gegnum árin en vert er þó að taka fram að hann verður áfram stjórnarmaður þó hann láti af störfum sem formaður. Aðrir stjórnarmenn Vilko eru Magnús Freyr Jónsson, Ágúst Sindri Karlsson og Ólafur Ó. Johnson. Núverandi framkvæmdastjóri er Gunnar Tr. Halldórsson.

Árið 2022 einkenndist af hækkunum á hráefnisverðum og flutningsgjöldum auk óstöðugleika í vöxtum og verðbólguáhrifum eins og snert hefur öll fyrirtæki og landsmenn alla. Ber þar helst að nefna hækkun á orkukostnaði sem hefur haft mikil áhrif á flutningsgjöld á hráefni frá Evrópu. Vilko hefur þó sloppið betur en margir aðrir framleiðendur með hækkanir á hráefnum sem er vissulega jákvætt.

Hjá Vilko eru framleiddar 378 vörutegundir undir vörumerkjum Vilko, Prima og Flóru. Auk þess framleiðir Vilko á annað hundrað vörutegundir í verktöku fyrir önnur fyrirtæki. Stór hluti af pökkunarverkefnum í verktöku eru bætiefni undir vörumerkjum Iceherbs og Protis. Bætiefnamarkaður og þ.a.l. bætiefnaframleiðsla er alltaf að aukast svo þessi þáttur er að nálgast fjórðung af rekstrartekjum Vilko. Það er því óhætt að segja að framleiðsla Vilko sé mjög fjölbreytt t.d. krydd, súpur, vöfflur, fæðubótaefni, poppkorn, sultur, kryddolíur o.fl.

Velta, fermetrafjöldi fyrirtækisins sem og starfsmannafjöldi hefur tvöfaldast á nokkrum árum. Það er því vissulega hægt að kalla það öran vöxt en því fylgja oft talsverðir vaxtarverkir. Stjórnendur og starfsmenn Vilko hafa oft talað um að fyrirtækið sé of lítið til að vera stórt og of stórt til að vera lítið. Stefna Vilko er að skapa öflugan vinnustað fyrir samfélagið, öflug viðskiptasambönd við hlutafjáreigendur og sterka stöðu á íslenskum matvælamarkaði. Við stefnum áfram á stækkandi fyrirtæki og erum alltaf opin fyrir nýjum verkefnum og tækifærum.

Gunnar Tr. Halldórsson

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga