Fyrri mynd
Nćsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Húnahornið
Open Menu Close Menu
Húnahornið
Föstudagur, 22. september 2023
   m/s
C
Ókeypt
huni.is - RSS-efnisveita
 
September 2023
SMÞMFL
272829303112
3456789
10111213141516
17181920212223
24252627282930
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 16:00 N 5 3°C
Laxárdalsh. 16:00 NNA 7 4°C
Vatnsskarð 16:00 ANA 5 2°C
Þverárfjall 16:00 NNA 4 2°C
Kjalarnes 16:00 98.0 9 8°C
Hafnarfjall 16:00 N 4 7°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
18. ágúst 2023
Okur, íslenska og illgresi
Já komið þið sæl og blessuð. Nöldri er ekki dauður úr öllum æðum þó langt sé um liðið frá síðasta nöldurpistli. Af nógu er að taka í nöldrinu en ég ætla þó aðeins að nefna nokkur atriði að þessu sinni. Fyrst ætla ég að byrja á verðlaginu í Kjörbúðinni okkar hér á Blönduósi.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Bjarna Jónsson
19. september 2023
Eftir Svölu Runólfsdóttur, Elínu S. Sigurðardóttur og Dagnýju Sigmarsdóttur
13. september 2023
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson
12. september 2023
57. þáttur. Eftir Jón Torfason
10. september 2023
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
09. september 2023
Eftir Sigurjón Þórðarson, varaþingmanns Flokks fólksins í NV-kjördæmi
04. september 2023
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
03. september 2023
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
29. ágúst 2023
N 65° 39' 32.04" V 20° 16' 55.2"
Pistlar | 27. júlí 2023 - kl. 19:35
Bæn fyrir fólki á ferðalögum
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson

Umhyggjusami og umvefjandi Guð, frelsari og eilífi lífgjafi!

Blessaðu öll þau sem ferðast um landið okkar í sumar. Gef að þau fái notið náttúrunnar, hins óviðjafnanlega landslags, fegurðar sköpunar þinnar. Forðaðu þeim sem ferðast um landið okkar frá öllu illu, hættum, slysum og tjóni. Hjálpaðu okkur að reynast góðir gestgjafar og minntu ferðamennina og okkur öll á að sýna ábyrgð og tillitssemi og leið þau heil heim með dýrmætar minningar í farteskinu.

Blessaðu einnig þau sem takast á hendur ferðalög til fjarlægra landa. Forðaðu þeim einnig frá slysum, hættum og öllu illu. Frá hverskyns háska eða tjóni. Gefðu að ferðalagið gangi vel og samkvæmt áætlun. Gef að við fáum að upplifa eitthvað nýtt og spennandi og getum um leið notið áningar og friðar með góðum ferðafélögum og í þakklæti til þín sem skapar, græðir, nærir og gefur líf. Í þakklæti til þín sem vilt að við njótum þess besta sem þú hefur skapað og gefið og lífið hefur upp á að bjóða.

Hjálpaðu okkur öllum að minnast ábyrgðar okkar gagnvart náunganum og náttúrunni hvar sem við erum og hvert sem við förum. Minntu okkur á sýna aðgát og tillitssemi í umferðinni og í samskiptum öllum. Vera umburðarlynd og kurteis og sýna þeim virðingu sem á vegi okkar verða og veita þeim aðstoð og stuðning sem á þurfa að halda.

Gefðu að ferðin og fríið verði skemmtilegt og skilji eftir bjartar og góðar minningar. Hjálpaðu okkur að njóta eðlilegra samvista í faðmi fjölskyldu, vina eða kunningja og gef við eignumst jafnvel nýja kunningja og vini. Hjálpaðu okkur að hafa augun opin fyrir eigin velferð og náungans og koma þeim til hjálpar sem hjálpar er þurfi. Leiddu okkur svo öll heil og sæl heim að nýju.

Þess biðjum við þig, náðugi og miskunnsami Guð. Þig sem ert höfundur lífsins og einn ert fær um að viðhalda því um eilífð.

Í Jesú nafni. Amen.

Friðarkveðja

Láttu friðinn úr hjarta þínu spretta sem ilmandi blóm svo hann verði að angan sem smýgur og fyllir loftið af keirleika.

Með kærleiks- og friðarkveðju og blessunaróskum.

- Lifi lífið!

Höfundur er ljóðskáld og rithöfundur og aðdáandi lífsins.

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2023 Húnahornið