September 2023 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 | 2 |
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Fyrri | Núna | Næsti |


Holtavörðuh. | 14:00 | N 6 | 3°C |
Laxárdalsh. | 14:00 | ANA 6 | 4°C |
Vatnsskarð | 14:00 | ANA 4 | 2°C |
Þverárfjall | 14:00 | NNA 4 | 2°C |
Kjalarnes | 14:00 | 102.0 8 | 7°C |
Hafnarfjall | 14:00 | N 4 | 7°C |


18. ágúst 2023 Okur, íslenska og illgresiJá komið þið sæl og blessuð. Nöldri er ekki dauður úr öllum æðum þó langt sé um liðið frá síðasta nöldurpistli. Af nógu er að taka í nöldrinu en ég ætla þó aðeins að nefna nokkur atriði að þessu sinni. Fyrst ætla ég að byrja á verðlaginu í Kjörbúðinni okkar hér á Blönduósi. ::Lesa |
Á þessu ári hefur því verið fagnað vel og innilega og þess minnst með margvíslegum uppákomum að 100 ár eru frá því að fyrstu strákarnir héldu til dvalar í Vatnaskógi. Meðal annars kom út veglegt afmælisrit sem fróðlegt er að fletta og segir langa sögu í máli og ekki síst myndum. Og fyrri part næsta árs verða 125 ár frá því að æskulýðsfrumkvöðullinn farsæli, sr. Friðrik Friðriksson, stofnaði formlega æskulýðsfélögin KFUM og KFUK hér á landi. KFUM í janúar og KFUK í apríl, sem fyrir all nokkrum árum sameinuðust í eitt félag með eina stjórn.
Ævinlega þakklátur
Ég verð ævinlega þakklátur fyrir að hafa ungur að árum verið kynntur fyrir starfi KFUM og KFUK og fá svo þegar ég hafði aldur til að gerast þátttakandi í því litríka og fjölbreytta, mannbætandi æskulýðsstarfi. En foreldrar mínir og báðir afar og ömmur voru þátttakendur í starfinu frá unga aldri og föður afi minn og alnafni einn af stofnendum KFUM árið 1899.
Ég var síðan strax á unglingsaldri orðinn leiðtogi í starfi á meðal 9 – 12 ára drengja í Laugarneshverfinu. Allt var þetta mjög þroskandi á allan hátt. Mér voru falin verkefni og ábyrgð. Mér var gefið rými til að átta mig á sjálfum mér, rækta styrkleika mína, koma fram, taka ákvarðanir, skipuleggja og stjórna. Allt þetta slípaði mig til og veitti mér nauðsynlegt aðhald og sjálfsaga. Að sjá með hjartanu, hlusta á aðra, verða skilningsríkari, kærleiksríkari, umhyggjusamari og ábyrgari. Um leið og það jók mér frelsi til að móta trúarhugmyndir mínar og dýpka í samfélagi og þjónustu við höfund og fullkomnara lífsins, frelsara heimsins og okkar allra, Jesú Krist.
Þarf ekki að rembast í eigin mætti
Ég hef fengið að finna það að ég þarf ekki að rembast í eigin mætti eða sýna það og sanna hver ég sé með einhverri yfirborðs- eða sýndarmennsku. Ég er aldrei einn á ferð, því Jesús er mér við hlið og vill fá að leiða mig um lífsins veg og alla leiðina heim þegar yfir lýkur. Allt þetta hefur verið farvegur útrásar fyrir hugsjón mína, tilfinningar og sannfæringu.
Verð aldrei samur
Í starfi KFUM og KFUK á unglingsárum kynntist ég svo mínum lífs förunaut og elskulegu eiginkonu, nú til 39 ára. Synir okkar þrír hafa verið þátttakendur með einum eða öðrum hætti á einhverjum tímapunktum í starfinu og barnabörnin eru fimmti ættliðurinn sem fær að njóta þeirrar dýrðar sem til dæmis Vatnaskógur hefur upp á að bjóða. - Algjörlega ómetanlega dýrmætt og þakkarvert.
Þjálfun í lífsleikni
Það að umgangast aðra leiðtoga og rækta þannig samstarfs tækni og þjálfast í að vinna með og tala við börn og unglinga er gríðarlega þroskandi og gefandi. Og síðar að fá að taka þátt í fullorðins starfi KFUM og KFUK. Ég starfaði t.d. sem forstöðumaður part úr einum 16 sumrum í Vatnaskógi. Þá stjórnaði ég m.a. aðalfundum Skógarmanna í ein 20 ár samfellt svo eitthvað sé nefnt. Ég var gerður að framkvæmdastjóra KFUM og KFUK árið 1998, ári fyrir 100 ára afmæli félaganna og starfaði sem slíkur í gegnum þau merku tímamót og inn í nýja öld og árþúsund. Allt þetta ásamt svo óteljandi öðru hefur reynst mér hinn besti skóli til þroska og þjálfunar sem hefur einnig reynst mér vel í öðrum krefjandi víðfangsefnum á ævinnar göngu.
KFUM og KFUK hafa því verið mér sem einhver albesti og mest gefandi lífsins skóli þar sem maður hefur lært á lífið og þroskast til heilla í þjónustu þess út í þjóðfélagið.
Með þakklæti, kærleiks- og friðarkveðju.
- Lifi lífið!
Höfundur er ljóðskáld og rithöfundur og aðdáandi lífsins.

02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |

03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |