Fyrri mynd
Nćsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Húnahornið
Open Menu Close Menu
Húnahornið
Sunnudagur, 3. desember 2023
   m/s
C
Ókeypt
huni.is - RSS-efnisveita
 
Desember 2023
SMÞMFL
262728293012
3456789
10111213141516
17181920212223
24252627282930
31123456
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 01:40 N 5 -8°C
Laxárdalsh. 01:40 A 5 -6°C
Vatnsskarð 01:40 NNA 3 -5°C
Þverárfjall 01:40 NA 8 -4°C
Kjalarnes 01:51 0 0°C
Hafnarfjall 01:40 V 1 -4°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
18. ágúst 2023
Okur, íslenska og illgresi
Já komið þið sæl og blessuð. Nöldri er ekki dauður úr öllum æðum þó langt sé um liðið frá síðasta nöldurpistli. Af nógu er að taka í nöldrinu en ég ætla þó aðeins að nefna nokkur atriði að þessu sinni. Fyrst ætla ég að byrja á verðlaginu í Kjörbúðinni okkar hér á Blönduósi.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
29. nóvember 2023
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
27. nóvember 2023
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
21. nóvember 2023
62. þáttur. Eftir Jón Torfason
18. nóvember 2023
Ingi Heiðmar Jónsson
11. nóvember 2023
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson
08. nóvember 2023
Eftir Bjarna Jónsson
06. nóvember 2023
61. þáttur. Eftir Jón Torfason
04. nóvember 2023
N 65° 39' 32.04" V 20° 16' 55.2"
Selvík. Mynd: Auðunn Blöndal
Selvík. Mynd: Auðunn Blöndal
Pistlar | 03. október 2023 - kl. 11:33
Stökuspjall á haustmánuði
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
  1. Flóðið hafa svanir sótt
    seiður í vængjablaki.
    Dregur að hausti, dimmir nótt
    dalurinn minn að baki. Ásgrímur Kristinsson Ásbrekku

     
  2. Þótt sölni grösin græn frá vori
    glói hrím á blaði og steinum
    gróðurilm úr gengnu spori
    geymum við í hugans leynum. Björn Daníelsson frá Valdarási skólastjóri Sauðárkróki

     
  3. Fönnum skrýðast fjöllin dala
    fjúk í hlíðunum.
    Á vetri stríðum vonir kala
    í verstu hríðunum. Ingibjörg Jónsdóttir Laufási í Víðidal

     
  4. Bágt er að sjá um víðan völl
    varmi frá er snúinn.
    Nú eru stráin iðgræn öll
    ísagljáa búin. Rakel Bessadóttir Þverá í Norðurárdal

     
  5. Vetur gengur garðinn í
    gilda langir klakafingur
    útsýn þrengir þoku ský
    þröstur enginn kvæði syngur. Hjálmar Þorsteinsson Mánaskál, síðar Hofi á Kjalarnesi

     
  6.  Hvítan skrúða nú á ný
    norðrið snúðugt vefur
    fjallið prúða fölvum í
    fannadúðum sefur. Sigríður Sigfúsdóttir Forsæludal

     
  7.  Vetrar dróminn vefur rós
    vekur hljóminn ama.
    Vonablómin, ljúf og ljós
    lúta dómi sama. Vilhjálmur Benediktsson Brandaskarði

     
  8.  Það er komin fönn í fjöll
    fer að kaldur vetur.
    Á sumarblómin bráðum öll
    bleika litinn setur. Kristján A. Hjartarson

     
  9.  Þrengist vökin, fannir fjúka
    fyrnast rökin góð.
    Herðir tökin hjarnsins lúka
    hímir klökugt stóð. Jónas Tryggvason

     
  10.  Mun ei saka dáðadrengi
    dymbilvaka hausts og snjóa.
    Þó fölna taki fjöll og engi
    finnur stakan græna skóga. Jónas Tryggvason

     
  11.  Þegar birta dagsins dvín
    dimman sest á bekki
    farðu að kveikja móðir mín
    mér svo leiðist ekki. Gömul vísa

Ingi Heiðmar Jónsson

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2023 Húnahornið