Fyrri mynd
Nćsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Húnahornið
Open Menu Close Menu
Húnahornið
Sunnudagur, 3. desember 2023
   m/s
C
Ókeypt
huni.is - RSS-efnisveita
 
Desember 2023
SMÞMFL
262728293012
3456789
10111213141516
17181920212223
24252627282930
31123456
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 01:10 N 4 -8°C
Laxárdalsh. 01:10 A 4 -7°C
Vatnsskarð 01:10 ASA 3 -5°C
Þverárfjall 01:10 NA 6 -4°C
Kjalarnes 01:21 0 0°C
Hafnarfjall 01:10 VSV 2 -5°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
18. ágúst 2023
Okur, íslenska og illgresi
Já komið þið sæl og blessuð. Nöldri er ekki dauður úr öllum æðum þó langt sé um liðið frá síðasta nöldurpistli. Af nógu er að taka í nöldrinu en ég ætla þó aðeins að nefna nokkur atriði að þessu sinni. Fyrst ætla ég að byrja á verðlaginu í Kjörbúðinni okkar hér á Blönduósi.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
29. nóvember 2023
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
27. nóvember 2023
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
21. nóvember 2023
62. þáttur. Eftir Jón Torfason
18. nóvember 2023
Ingi Heiðmar Jónsson
11. nóvember 2023
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson
08. nóvember 2023
Eftir Bjarna Jónsson
06. nóvember 2023
61. þáttur. Eftir Jón Torfason
04. nóvember 2023
N 65° 39' 32.04" V 20° 16' 55.2"
Pistlar | 26. október 2023 - kl. 13:38
Stökuspjall: Laufblað
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
  1. Til bókar um orðsnilld kvenna safnaði Málmfríður Sigurðardóttir, en bókin var gefin út 1992 og Málmfríður byrjar bókina með ljóði Huldu, Hver á sér fegra föðurland, ljóð helgað þjóðhátíð 1944 og Jakobína Sigurðardóttir skáld í Mývatnssveit orti af sama tilefni og á sama tíma:
     
  2. Íslandsljóð með lífsins vonum glitað
    leynt í vetrarhríð
    frelsisljóð með þrælsins þjáning hitað
    þrumað daufum lýð
    raulað ljúfling, hvíslað huld og blómi
    hjartans dýra ljóð. –
    Loksins sigursönginn einum rómi
    syngur íslensk þjóð. Jakobína Sigurðardóttir 17. júní 1944

     
  3. Kringum allt vort orðasafn
    og annað málaglingur
    getur hvergi göfgra nafn
    en góður Íslendingur. Þórunn B. Sívertsen

     
  4. Ó, Saga – vor harma og hamingjudís
    í höll þinni er kyrrlátt og bjart
    hve örlát þú gafst hinni íslensku þjóð
    allt hennar dýrasta skart. Margrét Jónsdóttir/Til Sögu

     
  5. Vindurinn vælir
    fer villtum höndum
    um greinar trjánna
    tætir af þeim laufin
    eins og trylltur elskhugi
    þar til kaldar greinarnar
    standa eftir kviknaktar.

    Kalin lauf, kyssa jörð
    í hinsta sinn.

    Bráðum kemur veturinn
    með faðminn fullan af frostrósum
    og færir þér. Valgerður Jónsdóttir/Haust

     
  6. Fyrsti kafli bókarinnar heitir Landið og náttúran og þangað eru ljóðin sótt.
     
  7. Eins og margir, lesendur góðir, hreifst ég af fundinum góða og sterka á Arnarhóli þegar hundrað þúsund konur komu saman, helguðu sér daginn 24. okt. s.l. og settu fram kröfur um betri heim og réttláta veröld. Ég sat s.s. heima í stólnum mínum og horfði á allan kraftinn í sjónvarpinu og fór svo að fletta bókinni Hildar Hákonar, Já, ég þori, get og vil.
     
  8. Öll miðlun, boðskipti og samskipti eru í raun ofurauðveld svo hópurinn hefur kannski verið helmingi stærri sem fylgdist með  þessu lifandi ákalli – af Arnarhól.
     
  9. En ég er ekki lögfræðingur, ekki heldur siðfræðingur, get kallað mig sagnfræðing með BA prófið mitt frá Bergsteini Jónssyni og öðrum kennurum mínum í Háskólanum fyrir hálfri öld. En hvað er ég að blanda þessu inn í þetta sterka ákall kvenna um betri heim?
     
  10. Við: samfélagið, kunningjahópurinn, jafnvel tveir karlar sem setjumst inn í kaffihús eða förum saman í heita pottinn á Stokkseyri, við erum alltaf að lenda í útúrdúrum, höldum ræður út og suður, drögum seiminn til að hinn komist ekki að og tíundum vel og vandlega hvað við séum ekki, ekki síst ef við lendum í kappræðum og förum jafnvel halloka.
    Æi, þetta skemmtir lítt, jújú, það má reka upp haha en skilar engu áleiðis í umræðunni nema síður sé. Og svo kemur Steingrímur – og nú má ég passa mig að lenda ekki í útúrdúrum, svo útúrdúrasamur sem ég er og svo margt sem segja má um það góða skáld, kennara og foringja með Arnljóti frá Auðólfsstöðum í Pereatinu – en Stgr. Thorsteinson orti:

     
  11. Lastaranum líkar ei neitt,
    lætur hann ganga róginn.
    Finni hann laufblað fölnað eitt
    þá fordæmir hann skóginn. StTh

     
  12. Kenning mín er sú að umræðuhefðin sem við höfum tamið okkur – og sem verður þá menning okkar í leiðinni – sé útúrdúrasöm og á stundum uppbelgd af hroka svo að okkur skilar ekkert áleiðis sem neinu nemur.
    Álasmenningu vil ég nefna hana.
    Við leggjum á minnið ýmsar ávirðingar raunverulegar eða ímyndaðar, hvörflum frá umræðuefninu ef þunglega gengur, dettum þá niður á eitthvað til að bauna á viðmælandann, getum kannski slegið hann út af laginu og rekið upp haha, smágrín, hvað varstu annars að segja?

     
  13. Og svo trúum við því að Katrín endist til að reyna að stjórna okkur. Og öllum útúrdúrunum!
     
  14. „Hva .... Hann meinar ekkert með þessu! Bara í nösunum." Einhverjir standa oft á hliðarlínunni til að afsaka yfirganginn. Og þessi orð skreppa stundum upp úr þeim.
    Enginn ábyrgur, þeir gætu farið að stjórna peningum.

     
  15. Og af hverju á að greiða hærri laun fyrir að passa peninga en að fræða börn auk þess að gæta þeirra? Kannski svarar einhver: Það er ábyrgðin!  Já, en fylgir því ekki meiri ábyrgð að rækta lifandi samfélag og bæta stríðshrjáðan heim.
    Hvor ætli sinni því frekar kennari eða bankastjóri?

     
  16. Geiglaus skulum við reyna að vera, kæru lesarar pistils, halla ekki réttu máli vísvitandi og svo ég hef trú á því að við þurfum að hlusta á skáldin. Ljóð gegn álasi, þau eru að jafnaði stutt og beinskeytt og þar þurfum við vel að velja eins og jafnan er. Sum verðum við svo upptekin af því um ævidaga okkar að rakka niður náungann og samfélag okkar. En þannig finnum við seint hið eftirsóknarverða geigleysi.

Heimildir og ítarefni:
Orðsnilld kvenna MM Rv. 1992 Málmfríður Sigurðardóttir valdi
Vísur e. Þórunni B. Sívertsen: https://bragi.arnastofnun.is/hunafloi/hofundur.php?ID=317
Vísur Stgr. Thorsteinsonar: https://bragi.arnastofnun.is/hunafloi/hofundur.php?ID=15180

Ingi Heiðmar Jónsson

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2023 Húnahornið