Desember 2023 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 1 | 2 |
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
Fyrri | Núna | Næsti |


Holtavörðuh. | 01:40 | N 5 | -8°C |
Laxárdalsh. | 01:40 | A 5 | -6°C |
Vatnsskarð | 01:40 | NNA 3 | -5°C |
Þverárfjall | 01:40 | NA 8 | -4°C |
Kjalarnes | 01:52 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 01:40 | V 1 | -4°C |


18. ágúst 2023 Okur, íslenska og illgresiJá komið þið sæl og blessuð. Nöldri er ekki dauður úr öllum æðum þó langt sé um liðið frá síðasta nöldurpistli. Af nógu er að taka í nöldrinu en ég ætla þó aðeins að nefna nokkur atriði að þessu sinni. Fyrst ætla ég að byrja á verðlaginu í Kjörbúðinni okkar hér á Blönduósi. ::Lesa |
Tendra þú, Drottinn,
friðarins eld,
í minni sál,
svo himneskt þar brenni
kærleikans bál.
Kærleikans bál,
í minni sál.
Láttu svo ljósið þitt,
lifandi bjarta
loga um framtíð alla,
blítt í mínu hjarta. (Sigurbjörn Þorkelsson)
Þegar við verðum fyrir vonbrigðum, eigum í erfiðleikum, skiljum ekki og skortir svör við gráum og dökkum gátum tilverunnar. Og þegar við finnum til vanmáttar og upplifum okkur eitthvað svo varnarlaus og komum því ekki í orð sem við vildum segja. Þá er svo ómetanlega gott að finna fyrir raunverulegri vináttu og finna samkenndina um sig streyma. Því góðir umvefjandi vinir eru þjónar kærleikans, jarðneskir englar sem létta undir og gera allt betra. Guð blessi þau öll sem umbera, sýna skilning og samstöðu án þess þó að þurfa að vera nákvæmlega sammála um alla hluti.
Velkominn, Jesús
Velkominn Jesús. Leiddu okkur og umvefðu í lífsins stormi og láttu okkur aldrei villast frá þér, né yfirgefa þig.
Þakka þér fyrir að kannast við okkur og yfirgefa okkur aldrei, sama hvað. Ég bið þig að tendra okkur með þínum lífgefandi anda og ljósi og skapa kærleikans frið í hjörtum okkar svo við fáum lifað saman í sátt og samlyndi með hvert öðru og með þér um eilífð.
Friðarins Guð, takk fyrir allar þínar góðu gjafir og þá ekki síst lífið sjálft. Gefðu að þegar upp er staðið verði það að sameiginlegri eilífri niðurstöðu hjá okkur öllum. Í Jesú nafni.
Kærleikans Guð fylli hjörtu okkar allra sínum heilaga og góða, heilnæma, fyrirgefandi, frelsandi og friðgefandi lífsins anda.
Láttu svo friðinn úr hjarta þínu spretta sem ilmandi blóm svo hann verði að angan sem smýgur og fyllir loftið af kærleika.
Með samstöðu- kærleiks- og friðarkveðju.
- Lifi lífið!
Höfundur er ljóðskáld og rithöfundur og aðdáandi lífsins.

02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |

03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |