Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Miðvikudagur, 24. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 20:20 0 0°C
Laxárdalsh. 20:20 0 0°C
Vatnsskarð 20:20 0 0°C
Þverárfjall 20:20 0 0°C
Kjalarnes 20:20 0 0°C
Hafnarfjall 20:20 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
N 65 39' 32.04" V 20 16' 55.2"
Pistlar | 26. febrúar 2012 - kl. 19:46
Kýs biskup eftir sextíu ár í sóknarnefnd
Eftir sr. Sigurð Árna Þórðarson

Magnús Annasson er búinn að vera í sóknarnefnd í um sextíu ár og þar af formaður sóknarnefndar í 25 ár. Nú lýkur hann ferli sínum í sóknarnefnd Tjarnarkirkju á Vatnsnesi með því að kjósa biskup. Hann segir að þetta sé orðið alveg nóg hjá sér.

Biskupskjör er framundan og ég hef boðið fram þjónustu mína. Til undirbúnings kjörinu var ég fyrir skömmu á ferð um Norðurland til að hitta kjörmenn og funda með sóknarnefndarfólki. Eitt kvöldið fórum við sr. Guðni Þór Ólafsson í heimsókn til Magnúsar. Hann hafði fengið frá mér bréf vegna kjörsins og sagði brosandi: “Þetta er allt í lagi hjá þér.”

Síðan rifjaði hann upp fyrir viðmælendur sína kirkjulífið á Tjörn, mannlífið á Vatnsnesi og kynni sín af prestum og líka biskupum. Hann mundi margar vísitasíur, mundi eftir Ásmundi Guðmundssyni. Síðan hafði Sigurbjörn Einarsson vísiterað og svo taldi hann biskuparöðina inn í nútíma Karls biskups. En Sigurbjörn hafði komið aftur - þá í einkaheimsókn. Magnús hafði verið í Tjarnarkirkju einn daginn þegar dyr voru opnaðar, maður kom inn og bauð góðan daginn. Hann þekkti komumann og fagnaði honum, þar var Sigurbjörn kominn og hans fólk – á ferð um Norðurland. Það birti yfir Magnúsi þegar hann sagði frá.

Magnús talaði svo um Tjarnarkirkju, um þá merku presta Sigurð Norland og Róbert Jack, um gripi og altaristöfluna. Og svo væri nú nauðsynlegt að laga veggfóðrið á einum stað! Hann væri búinn að minna sitt fólk á það. Nú tækju aðrir við. Hann væri búinn með sinn tíma og vissi ekki hvort honum entist aldur til að kjósa. Ég vona þó, að hann og allir hinir kjörmennirnir kjósi í biskupskosningunni í mars því aukið lýðræði í kirkjunni er fagnaðarefni og mikilvægt að ný skref lánist vel.

Öll höfum við hlutverk í ríki Guðs í veröldinni. Magnús hefur skilað góðu dagsverki. Kirkjan á honum mikið að þakka og vert væri að orða hann kirkjulegri orðu við lok ferils hans. Kirkjan þarf að temja sér að sjá, meta og tjá virðingu. Mér var þakklæti í hug þegar ég gekk út frá Magnúsi Annassyni, þakklæti fyrir umhyggju hans fyrir velferð kirkjunnar, fyrir þolgæði hans og andlegt örlæti. Ný kynslóð axlar nú ábyrgð í kristnilífinu á Vatnsnesi og lagar líka veggfóðrið. Gott þú góði trúi þjónn og fyrirmynd. Við erum öll hlekkir í þjónustufesti kristni Íslands og heims.

Sr. Sigurður Árni Þórðarson

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið