Upplýsingavefur um sameiningu sveitarfélaga í A-Hún.
Velkomin(n) á upplýsingavef um sameiningarmál sveitarfélaga í Austur-Húnavatnssýslu. Hér má finna fréttir, tilkynningar, fundargerðir og aðrar upplýsingar sem tengjast fyrirhugaðri sameiningu sveitarfélaganna fjögurra í Austur-Húnavatnssýslu sem eru; Húnavatnshreppur, Blönduósbær, Skagabyggð og Sveitarfélagið Skagaströnd.
18. mars 2020
Látið verði reyna á sameiningarvilja núverandi sveitarfélaga í sameiningarnefnd A-Hún.
Byggðarráð Húnaþings vestra telur eðlilegt að áður en víðtækar og á margan hátt flóknar sameiningar sveitarfélaga í öllum landshlutanum komi til umræðu verði reynt á sameiningarvilja þeirra sveitarfélaga í landshlutanum sem eigi að baki áratugalangt og náið samstarf innan afmarkaðra svæða hans. Þetta kemur fram í bókun byggðarráðs í tilefni af bréfi sem sameiningarnefnd Austur-Húnavatnssýslu hefur sent sveitarfélaginu.
Á fundi byggðarráðs Húnaþings vestra í fyrra dag var fjallað um bréf sameiningarnefndarinnar. Í því kemur fram að sameiningarnefnd Austur-Húnavatnssýslu hafi ákveðið að kanna áhuga annarra sveitarfélaga á Norðurlandi vestra á því að taka þátt í sameiningarviðræðum. Óskað er eftir því að sveitarstjórnir Akrahrepps, Húnaþings vestra og Sveitarfélagsins Skagafjarðar taki afstöðu til þess hvort þau hafi áhuga á þátttöku í sameiningarviðræðum með sveitarfélögum í Austur-Húnavatnssýslu.
Draga má þá ályktun af bókun byggðarráðs að Húnaþing vestra hafi ekki áhuga á þátttöku í sameiningarviðræðunum að svo komnu máli, enda eðlilegra að látið verði reyna á sameiningarvilja þeirra sveitarfélaga sem nú þegar eiga aðild að sameiningarnefndinni.
03. mars 2021
Í kvöld klukkan 20-23 verður fyrri rafræni íbúafundurinn um sameiningarviðræður í Austur-Húnavatnssýslu. Sá seinni verður á laugardaginn klukkan 10-13. Markmið fundanna er að kynna hugmyndir um uppbyggingu sameiginlegs sveitarfélags og fyrirkomulag þjónustu og verkefna, og fá fram sjónarmið og ábendingar íbúa áður en endanleg sameiningartillaga verður útfærð. Kynningarefni er aðgengilegt á Húnvetningi, sem er vefur sameiningarviðræðanna.
28. október 2020
Sveitarstjórnir Húnavatnshrepps og Skagabyggðar hafa samþykkt tillögu sameiningarnefndar Austur-Húnavatnssýslu um að um að sveitarfélögin fjögur í sýslunni hefji formlegar sameiningarviðræður og skipi tvo fulltrúa hvert sveitarfélag og tvo til vara í samstarfsnefnd. Húnavatnshreppur hefur skipað Jón Gíslason og Ragnhildi Haraldsdóttur í samstarfsnefndina og Jóhönnu Magnúsdóttur og Þóru Margréti Lúthersdóttur til vara. Skagabyggð hefur skipað Karenu Steinsdóttur og Magnús Björnsson í samstarfsnefndina.
14. október 2020
Sveitarstjórnir Blönduósbæjar og Skagastrandar hafa samþykkt tillögu sameiningarnefndar Austur-Húnavatnssýslu um að sveitarfélögin fjögur í sýslunni hefji formlegar sameiningarviðræður og skipi tvo fulltrúa hvert sveitarfélag og tvo til vara í samstarfsnefnd. Skagaströnd hefur skipað Halldór G. lafsson og Kristínu B. Leifsdóttir í samstarfsnefndina og Péturínu L. Jakobsdóttur og Guðmund Egil Erlendsson til vara. Blönduósbær hefur skipað Guðmund Hauk Jakobsson og Birnu Ágústsdóttur og til vara Sigurgeir Þór Jónasson og Gunnar Tryggva Halldórsson.
04. október 2020
Sameiningarnefnd sveitarfélaganna í Austur-Húnavatnssýslu hefur samþykkt að leggja til við sveitarstjórnir Blönduósbæjar, Húnavatnshrepps, Skagabyggðar og Sveitarfélagsins Skagastrandar að hafnar verði formlegar sameiningarviðræður. Lagt er til að sveitarfélögin samþykki að skipa tvo fulltrúa hvert sveitarfélag og tvo til vara í samstarfsnefnd sem kanna skal möguleika á sameiningu sveitarfélaganna í samræmi við 119. grein sveitarstjórnarlaga.