Þingeyrarkirkja
Þingeyrarkirkja
Pistlar | 20. febrúar 2015 - kl. 09:26
Organistapistill - Á það hiklaus treysti
Eftir Inga Heiðmar Jónsson

Jæja Húnvetningar góðir, okkur sem sitjum hér uppi í Hnitbjörgum sýnist að nú sé allt gerast á einni og sömu helginni, þeirri sem stundum er kennd við þorraþræl, daginn sem lötrar á eftir öllum hinu þorradögunum, en það er laugardagurinn en svo kemur sjálfur konudagur, góa hefst á sunnudegi, þá verður svannamorgunn, snótaraftan eða fljóðadagur. Hvað hefðu gömlu skáldin okkar sagt ef þau hefðu haft allan þann tíma sem við núna notum til að suðast og sífra, kvarta eða kveina yfir því að þetta er ekki og hitt er ekki. Hvað getum við sjálf gert!

Það verður konudagur, sunnudagurinn sem merktur er þessum meginhluta mannkynsins í íslensku tímatali, þær hafa verið á vakt í heila öld að sækja sín sjálfsögðu réttindi og völd. Þær hafa oft þurft að hlusta á hið margnota hvaaaa þegar einhver ný hugmynd birtist: Hvaaaa, það engin þörf á að breyta þessu!!!! Ekki að ræða hlutina, ekki að skoða umhverfið, heldur leita leiða til útúrsnúninga.

En við, karlar í Blönduóskirkju, ætlum að syngja Fósturlandsins freyja á sunnudagsmorgun, syngja sjálfan Matthías, kominn vestan frá Vaðilfjöllum og eyjaríkum Breiðafirði til að yrkja um Gretti og Glám, Tindastól og bjóða móður, konu og meyju að meðtaka lof og prís.

Guðsþjónusta í Blönduóskirkju kl. 11

Guðsþjónusta í Þingeyrakirkju kl. 14

Eftir hádegi safnast húnvetnskar og skagfirskar konur saman til að syngja í Miðgarði, Sóldísir, kvennakór, heldur þar tónleika kl. 15 og karlarnir í Heimi koma vestur á Blönduós á sunnudagskvöld og syngja í kirkjunni. Það verður margt að gera á nýja mánuðinum, hinum næstsíðasta vetrarmánuði.

Veri góa velkomin!

Ósk Skarphéðinsdóttir á Blönduósi kvað:

Oft þó hafi illu kynnst
á það hiklaust treysti
að búi í hvers manns eðli innst
einhver góður neisti.
http://bragi.info/hunafloi/visur.php?VID=24702

Hér er nýr vefur gerður af vísindakonum: http://www.hvatinn.is/

Ingi Heiðmar Jónsson

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga