HSN á Blönduósi
HSN á Blönduósi
Pistlar | 28. mars 2016 - kl. 10:56
Styðjum HSN á Blönduósi
Eftir Bóthildi Halldórsdóttur

Til framkvæmdastjóra, yfirmanna og annarra umsjónamanna fyrirtækja og félaga hér í sýslunni:

Mig langar að koma með ábendingu vegna HSN á Blönduósi, sérstaklega vegna þess að hér í kringum okkur hafa ýmis félagasamtök verið að styrkja og gefa til heilbrigðisstofnanna á sínu svæði, t.d. á Hvammstanga og Sauðárkrók, sjálfsagt vegna þess að þeim er ljóst að þeir fjármunir sem ætlaður er til reksturs þeirrar stofunnar sem er á þeirra svæði, dugar engan vegin til að endurnýja þau tæki og tól sem geta gert dvöl á heilbrigðisstofnun bærilegri en ella.

Málefni heilbrigðisstofnunarinnar á Blönduósi og þá sérstaklega málefni þeirra sem þar dvelja, eru mér mjög hugleikin og því vil ég biðla til fyrirtækja og félaga hér á svæðinu að hafa þessa stofnun í huga ef þeir sjá sér fært að styðja við gott málefni.

Margar góðar gjafir hafa borist sjúkrahúsinu á liðnum árum og ber svo sannarlega að þakka það en margt er orðið úrelt og þarf að endurnýja og margt má betur gera til að sem best fari um okkar fólk sem dvelur í lengri eða skemmri tíma.

Gætum við nú ekki skoðað þessi mál og stutt við þessa stofnun svo við getum verið stolt af henni og þeirri starfsemi sem þar fer fram.

Blönduósi 27.03.2016

Bóthildur Halldórsdóttir

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga