Pistlar | 30. júní 2016 - kl. 14:52
Með stolti og gleði bjóða Skagfirðingar Landsmót hestamanna 2016 velkomið heim að Hólum. Skagafjarðarsýsla keypti Hóla 1881 og stofnaði þar bændaskóla á hinu forna biskups- og menntasetri Norðlendinga um aldir. Fyrir mig sjálfan er þessi stóratburður, Landsmót hestamanna heima á Hólum einkar ánægjulegur. Ég minnist þess þegar ég fluttist með foreldrum mÃnum og fjölskyldu til Hóla sÃðla sumars 1981 og bjuggum við þar öll næstu 20 árin en ég lengur. Faðir minn, Jón Bjarnason sÃðar þingmaður og ráðherra var þá nýráðinn skólastjóri Hólaskóla, en reglubundið skólahald hafði legið þar niðri à tvö ár. Til stóð að leggja niður allt skólahald og loka Hólastað sem menntasetri. Þeirri ákvörðun var sem betur fer breytt og endurreisn Hóla ákveðin. Við vorum þá orðin fjögur systkinin à fjölskyldunni og mér fannst við vera að fara úti à nokkra óvissu. Sárt var að yfirgefa kindurnar, hestana mÃna og hið fjölbreytta sveitalÃf sem ég hafði alist upp við à Bjarnarhöfn á Snæfellsnesi. Ég fékk þó að taka skjóttu hryssurnar mÃnar tvær með mér heim að Hólum. Þær voru hörkuviljugar og þóttu nokkuð villtar þegar þær komu saman við hin ræktuðu rÃkishross á Hólum. En á Hólum hafði þá verið rekið hrossaræktarbú à meira en 20 ár. Þegar ég hugsa til baka til ársins 1981 að við komum að Hólum. Þá var varla nokkuð almennilegt hús Ãbúðarhæft og borið saman við staðinn à dag er breytingin ótrúleg ef ekki kraftaverk.
Endurreisn Hóla
Sérstaða Hólaskóla var þá þegar mörkuð sem miðstöð hrossaræktar og reiðkennslu à landinu og reyndar um gjörvallan heim Ãslenska hestsins. Og byggingar risu ein af annarri, hesthús, reiðskemmur og reiðvellir, Ãbúðarhús og kennsluhúsnæði. Skólahús og aðrar eldri byggingar voru gerðar upp. Námið efldist og þróaðist með alþjóðlegum blæ og hróður þess barst vÃða um heim. Innan fárra ára voru nemendur erlendis frá jafnvel fleiri en þeir Ãslensku. Fyrir okkur sem ólumst upp á Hólum á þessum umbrotatÃmum var þetta ævintýri lÃkast. Og þó svo faðir minn sæist lÃtið nema um blánóttina og móðir mÃn oft kölluð à mötuneytið, gestamóttöku eða búa um næturgesti heima, var staðurinn og Ãbúarnir eins og ein stór fjölskylda. Yngstu systkini mÃn tvö fæddust á Hólum, og svo sÃðar dóttir mÃn. Af öllu þvà góða fólki, stóru fjölskyldu, nemenda og starfsfólks verð ég að nefna einn án þess að halla á aðra. Ég er ekkert viss um að við værum nú að halda landsmót á Hólum ef traustri bústjórn Grétars Geirssonar hefði ekki notið við öll fyrstu árin okkar á Hólum.
Næturgestir, farkennarar þurftu yfirleitt að gista à húsi okkar þvà þröngt var um pláss og aðsókn nemenda mikil og umfram það sem hægt var að taka inn. Og Hólastaður óx og dafnaði, stolt Skagfirðinga. VÃgslubiskup HÃlastiftis og embættið fluttist heim að Hólum og fékk vÃðtækt hlutverk à kirkjumálum Hólastiftis. Námið færðist á Háskólastig, Hólaskóli- Háskólinn á Hólum miðstöð rannsókna og à kennslu i öllu þvà er varðar Ãslenska hestinn. Skólinn fékk til liðs við sig færustu reiðkennara og samstarf við allar greinar hestamennskunnar var ætÃð mjög náið. Vindheimamelar à Skagafirði hafa um langt árabil verið landsmóts og samkomustaður hestmanna à Skagafirði. Er mér sérstaklega minnisstætt landsmótið á Vindheimamelum 1982 og að verða vitni að þvà þegar glæsihryssan okkar Þrá, þá 4 vetra sló svo eftirminnilega à gegn. Þrá og afkomendur hennar hafa sÃðan gert garðinn frægan um allan heim Ãslenska hestsins.
Landsmót heima á Hólum
Hinn mikli kraftur og fórnfýsi hestamanna à Skagafirði skóp Vindheimamelum sérstakan sess meðal vina Ãslenska hestsins um langt árabil. Okkur verður hugsað með þakklæti til þeirra allra. Eftir að Hólar efldust sem miðstöð Ãslenska hestsins kom Ãtrekað til umræðu að byggja Hóla upp sem landsmótsstað. SlÃk hugmynd þurfti samt að þróast og er nú orðin að veruleika à Landsmóti hestamanna á Hólum 2016. Sem sveitarstjórnarmaður à Skagafirði um árabil hefur verið ánægjulegt að fylgjast með aðdraganda og undirbúningi þessa landsmóts.
Góðir landsmótsgestir! Hestamennskan, reiðmennskan, ræktun Ãslenska hestsins hefur tekið grÃðarlegum framförum og breyst à hreinar listgreinar og háþróaðar Ãþróttir. Glæsileiki og fegurð hrossanna er hrÃfandi og meiri en orð fá lýst. Þessi stökkbreyting sem gerst hefur hér á Hólum sÃðan endurreisn staðarins hófst 1981, er hreint ótrúleg. Hólar à Hjaltadal er stolt okkar Skagfirðinga, Norðlendinga og landsmanna allra. Megi landsmótsgestir njóta eftirminnilegra og góðra stunda. Verið velkomin heim að Hólum.
Bjarni Jónsson