Pistlar | 15. september 2016 - kl. 13:43
Blönduós plastpokalaust samfélag?
Eftir Önnu Margreti Valgeirsdóttur

Ekki alls fyrir löngu komu fram upplýsingar um það að tvær plasteyjur sem fljóta um, annars vegar í Kyrrahafi og hins vegar í Atlantshafi, séu á stærð við Rússland. Um er að ræða hafið sem fiskurinn okkar syndir í. Hve mikið af plasti ætli lendi í fiskmaga áður en fiskurinn endar á disknum okkar?

Ég á mér draum um plastpokalaust samfélag. Líklega komumst við ekki af án þess að nota plastpoka í ákveðna hluti en það er mjög margt sem við þurfum ekkert að nota plastpoka í. Svo er líka hægt að endurnota pokana sem falla til. Brauðpokar eru t.d. mjög góðir til margra nota. Nestið má setja í box, ruslið má setja í maíspoka og svona má lengi telja.

Það eru tvenns konar pokar sem fara mest fyrir brjóstið á mér. Í fyrsta lagi eru það skrjáfupokarnir (þessir þunnu með höldunum). Það er kraftaverk ef þeir lifa alla leið heim og því eru þeir yfirleitt ekki notaðir aftur. Í þeirra stað má nota margnota ávaxta og grænmetispoka. Sjálf hef ég tekið upp á að framleiða slíka poka og sel á vægu verði (sjá Endurvinnsluhornið á feisbókinni). Þeir eru mun fallegri, eru umhverfisvænir og endast árin út. Í öðru lagi eru það innkaupapokarnir. Ónauðsynlegir  með öllu! Það eiga auðvitað allir að nota margnota poka!

Algeng afsökun fyrir að nota ekki margnota poka er að fólk „gleymir þeim heima“. Ég fer oftast á bílnum í búð og set pokana í bílinn þegar ég er búin að tæma og þar með gleymi ég þeim ekki. Ávaxtapokana má setja ofan í innkaupapokann.

Svo notum við bara maíspoka undir ruslið!

En breytir hegðun okkar hér í þessu litla þorpi einhverju? Ég læt öðrum eftir að svara því en ég ætla ekki að láta mitt eftir liggja fyrir börnin mín og barnabörn að þrífa upp eftir mig.

Á morgun föstudag ætla ég að vera í Félagsheimilinu hér á Blönduósi og selja margnota poka, alla framleidda úr aflögðum efnivið. Hlakka til að hitta ykkur sem flest því ég trúi því að núna séu allir tilbúnir í þessa vegferð með mér – að gera Blönduós (og vonandi nágrannasveitarfélög líka) plastpokalaus.

Anna Margret Valgeirsdóttir

https://www.facebook.com/endurvinnsluhornid/?ref=aymt_homepage_panel

Höf. mbb

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga