Pistlar | 11. apríl 2014 - kl. 07:29
Ekki mjög sexy setning................en gæti skipt þig miklu máli
Eftir Hörð Ríkharðsson fræðsluerindreka

Á raunfærnimat erindi við þig?
Ef þú hefur ekki menntun í starfsgrein sem þú hefur samt mikla starfsreynslu í gætir þú bætt stöðu þína á vinnumarkaði með því að fara í raunfærnimat. Þú gætir tekið stór skref í átt að starfsréttindum og auknu starfsöryggi. Hægt er að fá færni sína metna í mörgum starfsgreinum á Íslandi t.d. má nefna flestar iðngreinarnar, skipstjórn, fisktækni, matartækni og fleira.  Ef fólk hefur starfað við starfsgrein þar sem raunfærnimat er í boði en hefur ekki lokið námi á því sviði þá getur það mögulega fengið færni sína metna á ákveðnum sviðum starfsins sem samsvara tilteknum námsgreinum í fagmenntun. Ekki er um að ræða að taka próf eins og við þekkjum þau úr skólum heldur mætir fólk í samtal þar sem rætt er um alla þætti og allar hliðar á því sem gert er í viðkomandi starfsemi, faggrein eða framleiðsluferli. Matið getur leitt til þess að einstaklingur telst hafa lokið tilteknum áföngum og þar með tilteknum einingafjölda í framhaldsnámi.

Mánudaginn  14. apríl næstkomandi munu starfsmenn Iðunnar fræðsluseturs kynna raunfærnimat á opnum fundi í Farskólanum á Sauðárkróki kl. 17:00.  Fundurinn verður opinn almenningi á Blönduósi og Skagaströnd,  í fjarfundabúnað, i í námsverum staðanna á Þverbraut 1 og Einbúastíg 2.

Einnig getur hver sem er, hvenær sem er, fengið viðtal hjá náms- og starfsráðgjafa á vegum Farskólans og fræðst um möguleika sína á sviði menntunar og atvinnu.

Hörður Ríkharðsson fræðsluerindreki.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga