Pistlar | 03. febrúar 2014 - kl. 10:33
Af söng í hjarta
Sigldi ég hátt í sólarátt
söng minn dátt ég þreytti.
Hug minn átti hafið blátt
hitt ég fátt um skeytti.
(Jónas Tryggvason 1916-1983)
Haf og heiðar eru meðal yrkisefna Jónasar Tryggvasonar,
sem flutti til Blönduóss fyrir hálfri öld og bjó þar til æviloka, giftist konu
frá Fljótstungu í Hvítársíðu, Þorbjörgu Bergþórsdóttur, sem var kennara við
barnaskólann. Þorbjörg lést 1981 en hann rúmum 2 árum síðar.
Jónas var elstur Finnstungusystkina, þriggja bræðra og
systur, Önnu Margrétar sem giftist ung til Blönduóss, bjó um árabil vestur í
Sandi og víðar, söng í kirkjunni eins og hún hafði gert frammi í dölunum. En
Jónas bróðir hennar flutti á Ósinn 20 árum síðar og hafði þá látið byggja sér
hús þar, við Húnabraut 26 þar sem hann rak verslun og bólstrun og sinnti málum
tónlistarfélags og skóla. Bræður þeirra bjuggu áfram á föðurleifð sinni, Jón
söngstjóri í Ártúnum og Guðmundur bóndi og trésmiður í Tungu.
Veistu, þegar ég held á hafið
haustnóttin fylgir mér ein?
Skiluðu, hverju hverflynd báran
hvíslar að votum stein? JT
Jónas var kominn yfir fertugt þegar hann flutti úr
dalnum sínum, þar hafði hann komið blindraiðn sinni á legg, safnaði bókum, átt
þar sinn ærhóp, stundaði heyskap og gegningar. Einnig var hann burðarás í
karlakórnum, söngstjóri hans í 7 ár og samdi nokkur lög og ljóð handa kórnum.
Ljóðið hér að neðan sigraði í samkeppni um söngljóð handa Sambandi norðlenskra
karlakóra:
Látum drengir hljóma hátt
Heklusöng á miðju vori.
Tökum hverja sorg á sátt.
Sjáum aðeins heiðið blátt
svo við getum saman átt
söng í hjarta, blóm í spori.
Faðir Tungusystkina, Tryggvi Jónasson, hafði stofnað
Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps með ungu og söngvinu bræðrunum frá
Eyvindarstöðum. Gísli og Þorsteinn Jónssynir voru nöfn þeirra og þeir urðu
fyrstu söngstjórar kórsins. Þorsteinn varð síðar organisti við Blönduóskirkju.
Ljóðabókina Harpan mín í hylnum gaf Jónas út 1959, árið
sem hann flutti út að Blönduósi.
Afmælisdagur Jónasar er 9. febrúar en þann sunnudag mun
kórinn í Blönduóskirkju syngja við messu lag hans og ljóð: Ég skal vaka. Nemendur
úr tónlistarskólanum munu spila í athöfninni og ljóðið Marka-Leifi verður lesið upp.