Pistlar | 27. febrúar 2014 - kl. 18:32
Eftir Kristinn H. Gunnarsson
Mótmælin við Austurvöll snúast um lýðræðið, grundvöllinn að friðsamlegu
samfélagi á Íslandi. Krafist er þess að ríkisstjórnin virði leikreglurnar og
feli þjóðinni að taka ákvörðun í máli, sem hún vill fá að ráða. Framhald ESB
viðræðna er mál sem fyrir liggur skv öllum könnunum að almenningur vill að
verði. Skjalfest liggur fyrir að meirihluti núverandi ráðherra hét því í
kosningabaráttunni í fyrra að lagt yrði fyrir almenning að taka ákvörðun um það
hvort viðræðum yrði haldið áfram. Þá sögðu þeir allir að vilji þjóðarinnar yrði
virtur. Það er samkvæmt forsendum lýðræðisins.
En nú er annnað upp á teningnum. Nú segir hver og einn
einasti ráðherra fullum fetum að það verði ekkert af þessu fyrirheiti.
Leikreglunum hefur verið breytt eftir á og nú gilda þær reglur að því aðeins
fær þjóðin að ráða ef ráðherrunum þóknast svo, annars ekki. Vilji ráðherranna
er nú settur ofar vilja þjóðarinnar. Það heitir á máli formanns
Sjálfstæðisflokksins pólitískur ómöguleiki þegar þjóðarvilji er annar er
ráðherravilji, og þá víkur þjóðarvilji. Ráðherravaldið hefurmeð þessu náð nýjum
hæðum og hrokagikkir valdsins hafa gengið lengra en áður.
Mótmælin snúast fyrst og fremst um það að verja
lýðræðið, leikreglurnar sem þjóðfélagsskipanin hvílir á og er ætlað að tryggja
friðsamlega sambúð og réttláta úrlausn mestu ágreiningsmála. Það verður aðeins
með því að virða vald þjóðarinnar og að ráðherrar beygi sig undir dóm hennar.
Þeim er ætlað að framfylgja þjóðarvilja eða víkja ella. Það getur ekki gengið
að ráðherrarnir setji þjóðinni skorður og segi henni fyrir verkum. Það er
ekkert annað en valdarán.
Ríkisútvarpið
hefur birt yfirlýsingar fjögurra ráðherra Sjálfstæðisflokksins, sem
allir lýstu því ótvírætt yfir að þjóðin myndi ráða framhaldi ESB viðræðnanna. Fjármálaráðherrann
lofaði kosningum á fyrra hluta kjörtímabilsins. Menntamálaráðherra sagði að
allir menn og allir flokkar yrðu bundnir af niðurstöðu þjóðarinnar.
Innanríkisráðherra sagði að það væri þjóðarinnar að ráða en ekki einstakra
stjórnmálamanna. Iðnaðarráðherra sagðist treysta þjóðinni til þess að taka
upplýsta ákvörðun. Þessu til viðbótar
skal rifjað upp að Heilbrigðisráðherra sagðist telja rétt að þjóðin fengi
tafarlaust að kjósa um áframhald viðræðnanna.
Allir ráðherrar Sjálfstæðisflokksins lofuðu kosningum
um framhald viðræðnanna, allir vísuðu til þess að þjóðin ætti að ráða og hún væri æðsti dómari í málinu. Þeir eru í
ríkisstjórn með Framsóknarflokknum sem gaf sömu fyrirheit. En þetta var fyrir
kosningar. Þá voru flokkarnir í stjórnarandstöðu og þá var Sjálfstæðisflokkurinn
í alvarlegri fylgiskreppu. Svo eindregnir voru flokkarnir í stuðningi sínum við
grundvallarreglu lýðræðisins að svo fór að naumur meirihluti kjósenda studdi þá
til valda; einmitt í þessi trausti.
En nú hafa þeir báðir snúið baki við grundvallareglu
lýðræðisins og gefa þjóðinni utanundir báðum megin með blautum sjóvettlingi. Flokkarnir hafna lýðræðinu þegar þeir eru ekki
vissir um að þjóðin vilji það sama og sérhagsmunahóparnir vilja sem þeir þjóna.
Þá víkur lýðræðið. Þarna er eldurinn sem knýr áfram mótmælin við Austurvöll og
mun að lokum reka stjórnarflokkana á flótta í málinu. Þjóðin mun ráða að lokum,
annað er óásættanlegt.