Pistlar | 18. apríl 2014 - kl. 15:55
Nú líður að páskum,
passíusálmar verða lesnir í Blönduóskirkju að kvöldi föstudagsins langa, kórinn
syngur milli lestra og einnig kl. 8 á páskadagsmorgni þegar hátíðarmessa verður
í kirkjunni. Á þriðjudagskvöldi, hittust til æfinga í Svínavatnskirkju,
aðstandendur fermingarbarna og sóknarmenn úr Svínadal, Blöndudal og af Hálsum
svo organisti bregði fyrir sig málfari Sturlungualdar en þar voru bæir
austanvert við vatnið heimfærðir svo. Fermt var svo í Svínavatnskirkju að
morgni skírdags en síðdegis var messa og altarisganga í Baðstofunni á
Héraðshælinu. Mjög fjölsótt var í báðum messunum og fáeinir stóðu í
fermingarmessunni.
En aðeins meira um landafræði
og prestsdætur við Svínavatn, en fyrir enda vatnsins þurftu Auðkúluprestar að
krækja þegar þeir riðu á annexíuna á Svínavatni. Á veturnar lagði vatnið og
styttist þá drjúgum kirkjuvegurinn. Auðkúluprestakall var eftirsótt brauð og
fylgdi því m.a.s. kirkjujörð ætluð prestsekkjunni þegar svo bar við. Þessi jörð
heitir Litlidalur og þaðan komu kennslukonur og forstöðukonur til Kvennaskólans
á Ytri-Ey og Blönduósi sem voru líka prestsdætur frá Auðkúlu. Þær voru dætur
sr. Jóns Þórðarsonar Auðkúlu og systur Þóru Jónsdóttur tengdamóður sr. Gunnars
Árnasonar á Æsustöðum.
Gleðilega páskahátíð.