Pistlar | 05. mars 2015 - kl. 21:53
Úr vörn í sókn
Eftir Guðmund St. Ragnarsson

Um daginn horfði ég á mjög góðan þátt Kristjáns Más Gunnarssonar á Stöð 2 í þáttaröð hans ,,Um land allt”. Þátturinn fjallaði um atvinnu- og mannlíf hjá ,,frændum” Húnvetninga í Húnaþingi vestra. Þátturinn bar yfirskriftina ,,Úr vörn í sókn á Hvammstanga”.

Mikill bjartsýni einkennir forsvarsmenn sveitarfélagsins og fyrirtækja á svæðinu og kraftur er í félagslífinu á Hvammstanga. Mikið er um það að ungt fólk flytji aftur heim og taki þátt í atvinnulífinu á Hvammstanga og nærsveitum. Þá hefur börnum fjölgað talsvert í sveitum sveitarfélagsins. Mikið væri gaman ef þannig væri víðar háttað í hinum dreifðu byggðum landsins.

Það vakti athygli mína að frá haustinu 2012 hefur verið svokallað dreifnám með útibúi frá Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki. Með þessu móti er unga fólkið, alls 36 nemendur, lengur í heimahúsum sem hefur auðvitað gríðarlega mikla þýðingu fyrir samfélagið í heild sem og einstakar fjölskyldur.

Sveitarstjórinn ræddi um það að mikil samstaða ríki í sveitarfélaginu. Fleiri heimamenn töluðu um samstöðu og samheldni. Hljóðið væri þannig í fólki að það væri búið að snúa vörn í sókn og mikill hugur væri í fólki. Það væri þó ekki endilega svo að ekki væri rifist í sveitarfélaginu eins og gengur enda eru skoðanaskipti og gagnrýni forsenda framfara. Mikill uppgangur t.d. í ferðaþjónustu og öðrum geirum atvinnulífsins.

Það er full ástæða til að óska frændum vorum í Húnaþingi vestra til hamingju með uppganginn og bjartsýnina. Það er virkilega gaman að sjá að á landsbyggðinni sé til fólk sem sýnir dugnað og frumkvæði og enn skemmtilegra er þegar unga fólkið snýr aftur heim til sín þar sem það fær störf við hæfi.

Mér virðist sem forsvarsmenn samfélagsins í Húnaþingi vestra hafi tekið tvær afar skynsamlegar ákvarðanir: 1) Hætta að vera í vörn og 2) Fara í sókn.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga