Pistlar | 15. júlí 2015 - kl. 16:37
Gömul og ný loforð um orku Blönduvirkjunar
Eftir Halldór G. “lafsson, sveitarstjórnarmann á Skagaströnd

Mikið er rætt og skrafað um áform um iðnaðaruppbyggingu í Skagabyggð og kröfu Húnvetninga um nýtingu staðbundinna auðlinda í heimabyggð þ.e. orku Blönduvirkjunar. Einstaka þingmenn og ráðherrar hafa tjáð sig um málið og þar á meðal háttvirtur iðnaðarráðherra. Hann hefur látið hafa eftir sér að Húnvetningar hafi engan sérstakan rétt til að gera kröfu til orku virkjunarinnar. Ekki sé boðlegt að draga fram rykfallin loforð um slíkt hafi þau þá einhverntíman verið gefin. Formaður atvinnuveganefndar hefur einnig ítrekað komið fram í fjölmiðlum og komið þeim skilaboðum á framfæri að engin orka sé í boði.

Þessi gömlu loforð þekki ég ekki enda barn þegar umræður um byggingu virkjunarinnar fór fram. Í Húnavatnssýslu eru þó enn sveitarstjórnarmenn að störfum sem ættu að þekkja feril málsins og gætu því skerpt á umræddum loforðum.

Það sem hvatti mig hins vegar til þess að stinga niður penna var að mér finnst að ekki sé einungis um að ræða gömul rykfallin loforð.  Hæstvirtum iðnaðarráðherra og alþingismönnum ætti að vera ljóst að á Alþingi Íslendinga þann 15. Janúar 2014 var eftirfarandi þingsályktunartillaga samþykkt:

Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að koma á samstilltu átaki stjórnvalda og sveitarfélaga í Austur-Húnavatnssýslu um eflingu atvinnulífs og sköpun nýrra starfa á Norðurlandi vestra með nýtingu raforku sem framleidd er í Blönduvirkjun. Markmiðið með átakinu er að efla samkeppnishæfni svæðisins og undirbúa það fyrir þá uppbyggingu sem fylgir orkunýtingu Blönduvirkjunar og jafnframt vinna að markaðssetningu svæðisins sem iðnaðarkosts, svo sem fyrir gagnaver.

Ég get ekki betur séð en að í þessari ágætu tillögu séu, til þess að gera nýlega, Húnvetningum og nærsveitungum gefin ágætis fyrirheit um að orka Blönduvirkjunar verði nýtt til uppbyggingar í héraði. Við meðferð málsins sá Atvinnuveganefnd ekki ástæðu til að leggja til breytingar á tillögunni en sendi frá sér álit þar sem nýting orku Blönduvirkjunar er nefnd sérstaklega og áréttað að í umsögnum um tillöguna hafi verið nefnt að mikilvægt sé að nýta tækifæri sem víðast um landið.

Það er gott að búa í Húnavatnssýslu enda þar góð samfélög og gott fólk. Svæðið hefur mátt muna fífil sinn fegurri enda þurft að greiða dýru verði stórfelldar breytingar á atvinnuháttum. Húnvetningar hafa allt of lengi sætt sig við að staðbundin auðlind þ.e. orka Blönduvirkjunar hefur ekki verið nýtt svæðinu til framdráttar. Alþingi hefur sent frá sér vel ígrundaða tillögu sem styður réttmæta kröfu Húnvetninga og því er  rétt að leggjast saman á árarnar og snúa vörn í sókn.

Höf. ass

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga