Pistlar | 03. nóvember 2015 - kl. 21:55
Spurt um atvinnumál
Eftir Hörð Ríkharðsson

Þann 14. janúar 2014 samþykkti Alþingi eftirfarandi ályktun:“ Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að koma á samstilltu átaki stjórnvalda og sveitarfélaga í Austur-Húnavatnssýslu um eflingu atvinnulífs og sköpun nýrra starfa á Norðurlandi vestra með nýtingu raforku sem framleidd er í Blönduvirkjun.“

Þessi ályktun var samþykkt mótatkvæðalaust í þinginu. Ályktun sú sem hér um ræðir er nú bráðum tveggja ára gömul. Það sem einkennir þessa ágætu ályktun öðru fremur er að hún er ákaflega skýr, gagnorð og auðskiljanleg hverjum þeim sem hana les. Í henni felst að efla á atvinnulíf, skapa ný störf og nýta til þeirra hluta þá raforku sem framleidd er í Blönduvirkjun og er ríkisstjórninni falið að standa fyrir þessu verki.

Verkefni þetta er að sjálfsögðu ekkert áhlaupaverk sem hægt er að koma frá með einföldum hætti en þess heldur er mikilvægt að því sé fylgt eftir og að því sé unnið af kappi. Alþingi verður við samþykkt ályktunar sem þessarar að gera sér ljósa grein fyrir því hvaða væntingar rísa meðal íbúa á svæði sem ályktun af þessu tagi nær til. Íbúar svæðis sem tiltekið er með jafn afgerandi hætti og hér hefur verið gert gera að sjálfsögðu þá kröfu að árangur verði af þessu starfi og staðið verði við þau fyrirheit sem gefin eru með samþykkt ályktunarinnar. 

Ég notaði því tækifærið á dögunum á Alþingi og spurði hæstvirtan iðnaðar og viðskiptaráðherra hvernig gengi að framkvæma þennan skýra vilja Alþingis. Svar hennar má nálgast hér: http://www.althingi.is/altext/upptokur/lidur/?lidur=lid20151102T155454 og hér http://www.althingi.is/altext/raeda/145/rad20151102T155815.html vil ég hvetja sem flesta til að kynna sér það.

Hörður Ríkharðsson

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga