Úr nýjasta Húnavökuritinu
Pistlar | 11. mars 2023 - kl. 22:09
Sögukorn: Ég ann þér af einlægu hjarta ...
- Húnavaka, ársrit USAH, kom út í vetur, en litlu munaði að svo yrði ekki og þar með hefði þetta merkisrit lognast út af. Þetta var eitt hefti fyrir 2 ár, árin 2020 og 21.
- Hægt er að panta nýja ritið á usah540(hjá)simnet.is.
- Það liggur mikið verk að baki hverju riti og síðasti ritstjórinn, Skagstrendingurinn Ingibergur var vinnusamur, nákvæmur og ötull. Ingibergur lét af ritstjórastarfi með 60. árgangi, þ.e. fyrir árið 2019.
- Stefán ritstjóri og þau Kagaðarhólshjón lögðu mikið af mörkum til útgáfu og samninga ritsins en þrautseigja Stefáns dugði vel svo ritinu varð lífvænt.
- Nýi ritstjórinn, Magdalena Berglind Björnsdóttir, ávarpar lesendur í nýja ritinu:
- Að fínpússa efnið og færa í letur
frásagnir ykkar og myndug ljóð
Ritnefndin vann þetta svona í vetur
vökulir karlar og iðjusöm fljóð.
- Engin laun greiðast þarna fyrir mikla vinnu sem ritnefnd og þó sérstaklega ritstjóri hafa lagt af mörkum áður en nýtt rit kemst í hendur Húnvetninga og fleiri lesenda.
- En það kom mjög skýrt í ljós á þessum óvissu- og kóvídtímum Húnavökunnar að lesendur vilja endilega fá ritið áfram, lesa og skoða myndir, geta flett þar upp, séð börnin sem fæddust á árinu, verðurfar og mannfjölda, æskulýðs- og íþróttastarf, almenn félagsstörf, menningarmál, menntamál, frá opinberum aðilum, atvinnulíf og svo ýmsar fréttir.
- Og fyrir þetta góða rit, rúmlega 260 bls. og ríkulega prýtt myndum, þurfum við aðeins að greiða 3 þúsund krónur.
- Gömlu kennararnir mínir við unglingaskólann á Blönduósi, þeir Þorsteinn skólastjóri Matthíasson og Stefán Jónsson á Kagaðarhóli stofnuðu héraðsritið Húnavöku 1961 og þeim eigum fyrst að þakka en þeir Stefán og Ingibergur voru ásamt Þorsteini ritstjórar fyrstu 60 árin.
- Þorsteinn var ritstjóri í 5 ár, Stefán 48 ár, Ingibergur 12, en hafði setið áður í ritnefnd í 26 ár.
- Í nýju Húnavöku er úrvalsgott viðtal við Sigríði á Kagaðarhóli, ekkju Stefáns ritstjóra.
Nýi ritstjórinn, Magdalena Berglind tók viðtalið.
Á Kagaðarhóli
Nú lífgrös og laukar skarta.
Lofgjörð því vori syng.
Ég ann þér af einlægu hjarta
ágæta Húnaþing. Sigríður Höskuldsdóttir
Meira efni um/úr Húnavöku:
Eldra sögukorn af USAH og Húnavökuritun: https://www.huni.is/index.php?pid=58&cid=19679 Fylgirit með Húnavöku kom út 2010, þar er höfundaskrá, leiðréttingar o. fl. Unnið af Ingibergi ritstjóra: https://timarit.is/page/6458062iabr=on#page/n3/mode/2up/search/h%C3%BAnavaka
Minningarorð ritnefndar um Stefán ritstjóra á Kagaðarhóli: https://timarit.is/files/44897924 og https://timarit.is/files/44897934
Ingi Heiðmar Jónsson