Pistlar | 07. júní 2017 - kl. 20:46
Prjónagleði
Eftir Jóhönnu E. Pálmadóttur

Kæru lesendur.

Nú fer Prjónagleðin 2017 að detta á og undirbúningur á fullu. Boðið er upp á mörg spennandi námskeið og fyrirlestra og vonumst við til að þið finnið eitthvað við ykkar hæfi.

Einnig verður boðið upp á fræðsluhorn þar sem fólk getur sest niður í allt að hálftíma og lært eitthvað spennandi af því fólki sem býður sig fram. Þessi fræðsla er innifalin í armbandi.

Margir aðilar hafa skráð sig með sölubása og að þessu sinni var ákveiðið að hafa gjaldfrjálsan aðgang að þeim og veitingasölu í Íþróttamiðstöðinni. Þeir sem taka þátt í öðrum atburðum greiða 2.000.- í umsýslugjald eins og áður var og minnum við á fyrirlestur Iðunnar Vignisdóttur á föstudaginn í Kvennaskólanum er innifalin í því verði.

Kl. 12:00 á hádegi laugardags hefst hönnunsamkeppni sem stendur í allt að 3 tíma. Sjá hér. Prjónagleðin er ásamt Orkanger í Noregi og Fanø í Danmörku þátttakandi í Norrænni samvinnu á sviði prjónahönnunar. Kynning á verkefninu verður í Kvennaskólanum kl 20:00 föstudaginn 9. júní. Hvetjum við alla þá sem hafa áhuga að skrá sig á textilsetur@simnet.is. Ístex gefur band til verkefnisins en fólk er hvatt til að taka með efni að eigin vali að heiman.

Hápunktur hátíðarinnar er prjónagjörningurinn „On our own time“ sem haldinn verður í Fagrahvammi ef verður leyfir, kl. 17:30. Okkur vantar sárlega fleira fólk sem prjónar með okkuren í allt verða að vera 83 sem standa saman í klukkustund og prjóna í hring. Hvet ykkur endilega til að taka þátt eða hreinlega að mæta til að sjá og gera þennan skemmtilega gjörning að veruleika. Efst á síðu Prjónagleðinnar er hægt að skrá sig, www.prjonagledi.is.

Þetta er í 6. landið  sem gjörningurinn „On our own time“ heimsækir en hvert land hefur sína liti og verður spennandi að sjá hvaða litir verða teknir upp á Íslandi. Ístex gefur bandið til verkefnisins.

 

Hlökkum til að sjá ykkur og góða prjónahelgi,

Fyrir hönd undirbúningshópsins,

Jóhanna E. Pálmadóttir

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga