Prestbakkakirkja. Ljósm: Aðsend.
Prestbakkakirkja. Ljósm: Aðsend.
Pistlar | 13. ágúst 2018 - kl. 09:14
Sumarmessan verður að Prestbakka
Eftir Inga Heiðmar Jónsson

Næsta sunnudag, þann 19. ágúst, verður guðsþjónusta að Prestbakka kl. 14. Þar var sóknarprestur fyrir 70 árum, sr. Jón Guðnason, góður fræðimaður og síðar þjóðskjalavörður í Reykjavík.  Þegar hann kom að Prestbakka 1928 var komið að undirbúningi Héraðsskólans á Reykjum. Jón átti stóran þátt í undirbúningi þeirrar merku menningarstofnunar og kenndi við skólann meðan hann bjó í Hrútafirði en stýrði honum stundum. Hann flutti til Reykjavíkur 1948, tók þar við starfi skjalavarðar og varð umsvifamikill í fræðistörfum sínum. Meðan hann var heima í Hrútafirði gaf hann út þjóðhætti og ævisögu Finns á Kjörseyri, en hann átti eftir að gefa út þykk og myndum aukin ábúendatöl, bæði af Stranda- og Dalamönnum allt aftur til 1703, ritstýra Merkum Íslendingum og bæta sjötta bindi við Æviskrá Páls Eggerts Ólasonar.

Annar fræðimaður og síðasti sóknarprestur sem sat á Prestbakka, sr. Ágúst Sigurðsson, vann dýrmætt starf sem varpar ljósi á störf presta og prestkvenna og sögu kirkjustaða. Þessara  snjöllu fræðimanna minnst í messuskránni.

Sóknarpresturinn, sr. Guðni Þór Ólafsson, stígur í stólinn á sunnudaginn, en organisti verður Ingi Heiðmar Jónsson.

Starf við Húnaflóa/vísnavef hefur nú staðið í fjögur ár og minnt á vefinn í skránni.

Jónsdagar á Skaga verða frá þriðjudegi fram á föstudag í Skagabúð, en lokadaginn, 17. ágúst munu tveir yngri Jónar koma með sögur sínar út að Hofi, fæðingarstað Jóns Árnasonar bókavarðar og flytja þar.

Jón Benedikt Björnsson mun greina frá því hvernig Vatnsdalshólar urðu til, það verður kl. 15 í Skagabúð, en hálftíma síðar hefst fyrirlestur Jóns Torfasonar í Hofskirkju og fjallar þar um þessa elstu kirkju sýslunnar og gripi hennar.

Bókamarkaður með húnvetnskar bækur, ljóðabækur og nýlega þjóðsagnabók verður opinn á Jónsdögum þar í Skagabúð frá kl. 14-18.

Vitnað er til:
Sumarmessa 2018 https://www.facebook.com/events/321935341882373/
Sr. Jón Guðnason - minningargrein: http://timarit.is/files/16672375.pdf#navpanes=1&view=FitH
Sr. Jón á Stikilsvef: http://stikill.123.is/blog/2017/09/12/769548/
Sr. Ágúst Sigurðsson - minningagrein: https://www.mbl.is/greinasafn/grein/1346490/
Jónsdagar á Skaga: https://www.huni.is/index.php?pid=32&cid=15039

Ingi Heiðmar Jónsson

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga