Pistlar | 03. maí 2020 - kl. 19:34
Bænin eflir samstöðu
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson

Bænin gerir okkur meðvitaðri um okkur sjálf, samferðafólk okkar og umhverfi. Hún fær okkur til að átta okkur á hver við erum og hvert við raunverulega viljum stefna.

Um leið og bænin skerpir á núvitund færir hún okkur von og eilífa lífssýn. Málið er nefnilega að lifa í núinu en njóta þess í ljósi eilífðarinnar.

Bæn til Guðs er ekki einhver veruleikafyrring. Bænin er að koma hugðarefnum sínum, áhyggjum og vænmætti út úr sjálfum sér og leggja það sem á okkur hvílir hverju sinni á herðar Jesú Krists, frelsara okkar samkvæmt hans tilboði.

Hans sem léttir byrðar og gefur frið sem fæst hvorki keyptur né seldur en er raunverulegur hjarta friður æðri öllum mannlegum skilningi.

Með bæninni gerum við okkur betur grein fyrir ástandi okkar. Komum orðum að því og fáum sjálfan höfund og fullkomnara lífsins, kærleikans og friðarins í lið með okkur. Hann sem elskar okkur út af lífinu.

Bænin er svo dýrmætur og dásamlegur lykill að friði og jafnvægi í huga og hjarta. Því að læra að njóta í þakklæti. Hún er bæði kvíðastillandi og streitulosandi.

 Máttur bænarinnar

Bænin kallar eftir og eflir samstöðu. Reynslan sýnir að það verður allt
eitthvað svo miklu betra með bæninni.

Bænin er nefnilega svo magnað undratæki sem vekur upp einhvern óskiljanlegan undrakraft sem líknar og læknar með ófyrirséðum hætti, þrátt fyrir allt. Og gefur himneskan frið í hjarta þegar allt virðist jafnvel ætla að vera að fara á verri veg.

Biðjum fyrir:

Biðjum fyrir þeim sem nýlega eða einhvern tíma hafa misst og vita því af eigin raun hvað það er að syrgja og sakna.

Biðjum einnig fyrir þeim sem orðið hafa fyrir hvers kyns vonbrigðum eða hafa upplifað áföll og gengið í gegnum erfiða tíma. Biðjum Guð um að vera þeim nálægur, umvefja þau, uppörva og styrkja.

Biðjum fyrir samstarfsfólki okkar og samferðafólki almennt. Heimsbyggðinni allri og ástandinu í heiminum og þeim sem við þurfum að eiga samskipti við.

Gleymum svo ekki að biðja daglega fyrir okkar nánustu fjölskyldu og vinum og hvað þá okkur sjálfum.

Biðjum ekki síst fyrir þeim sem daglega ganga til sinna hversdagslegu verka, jafnvel í breyttu ástandi og heyja þannig sína stöðugu lífsbaráttu.

Já, biðjum fyrir öllum þeim sem elska lífið, þrá að höndla það, fá að vera með, halda í það og njóta þess með einhverjum ásættanlegum hætti án þess að missa sig í eitthvað.

Með kærleiks- samstöðu- og friðarkveðju.

- Lifi lífið!

Höfundur er ljóðskáld og rithöfundur og aðdáandi lífsins.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga