Pistlar | Tilkynningar | 12. nóvember 2020 - kl. 20:45
Þakkar kveðjur til B&S Restaurant

Við GULLBORGARNIR Hlynur og Silla sendum hjartans þakkir til Björns Þórs og Söndru eigenda B&S Restaurant á Blönduósi.

Fengum heim að dyrum dýrindis kvöldmat, kótilettur með öllu tilheyrandi eins og allir Gullborgara á Blönduósi, sem eru 70 ára og eldri. Þetta er á annað hundrað manns. Þvílíkt framtak.

Ef eitthvað getur glatt gömul hjörtu, er það einmitt svona dásamleg gjöf sem lífgar heldur betur upp á tilveruna.

Fengum einn úr ættinni til að semja fyrir okkur vísu, látum hana fylgja hér með:

Er veiran heiminn herjar á
með hörmulegum fréttum.
Gullborgara gleðja þá,
gæðahjón með kótilettum. (ÞÞH)

Svo kom önnur sem við látum fylgja með:

Nú gamlingjarnir gæða sér
á girnilegum réttum.
Falskar tennur fanga hér
fullt af kótilettum. (ÞÞH)

Enn og aftur takk fyrir okkur.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga