Pistlar | 21. júní 2021 - kl. 11:07
Andi sköpunarinnar
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson

Kærleiksríki, stórkostlegi Guð, þú skapandi og elskandi andi. Þú sem ert upphafið og endirinn, frelsarinn, lífið sjálft og eilífðin. Höfundur og fullkomnari lífsins.

Miskunnar þú okkur og veit þú okkur örlátlega af lífi þínu, kærleika þínum og friði. Við erum líf af lífi. Það varst þú sem gerðir okkur svona og komst okkur hérna fyrir. Óendanlega elskuð af þér. Ætlað að vera farvegir kærleika þíns, miskunnar og náðar, fyrirgefningar og fagnaðarerindis. Að vera samferðarfólki til blessunar og þér til dýrðar og þannig sjálfum okkur til heilla og hamingju, gleði og blessunar.

Vilt þú gefa okkur innblástur af anda þínum. Viltu fylla okkur af þínum heilaga, góða og heilnæma anda. Það er svo mikilvægt fyrir okkur mannfólkið að við myndum skjól fyrir hvert annað og einnig öll þau sem fara um hrjóstrugan svörðin. Gef okkur að vera lampar þínir. Ljós af þínu ljósi sem lýsir upp tilveruna, varðar veginn og vekur von. Að vera vegvísir þeirra sem villst hafa af leið. Hafa ratað í ógöngur, komast ekki fyrir eigin styrk upp á veginn og finna ekki leiðina heim. Leiðina sem liggur til hamingjunnar.

Takk, Guð, fyrir að velja okkur í lið lífsins og fá að vera með í lífsins leik. Þótt við skynjum okkur oft svo vanmáttug, umkomulaus, lín og smá, úthaldslítil og getulaus. Þá erum við bara eins og við erum. Elskuð af þér ómótstæðilegri, óendanlegri eilífri ást.

Óhætt

Hvar sem ég er og hvert sem ég fer, þar ert þú, ó Guð. Því þar sem ég er, þar ert þú. Og hvar sem þú ert. Þar er mér óhætt.

Ég er hér og þú ert þar. Samt alls staðar, alltaf. Líka hér og nú hjá mér. Mér finnst svo gott að mega vita af þér og fá að hvíla í þér öllum stundum, í öllum veðrum. Eitt stundlegt augnablik í einu, alla leið.

Megum við nú biðja þess að hinn ljúfi andvari ástar Guðs mætti um okkur leika líkt og blíður blær sem vermir vanga. Viltu hughreysta okkur. Viltu minna okkur á þig og vonina sem þér fylgir. Viltu færa okkur yl þíns heilaga góða anda í brjóst og hjarta svo það mætti birta varanlega yfir okkur. Svo við fáum að upplifa allar lífsins sælustu stundir í þinni nærandi nærveru svo við endurnýjumst dag frá degi og verðum stöðugt ný í þér.

Þess biðjum við þig um leið og við lofum þig og þökkum þér.

Í frelsarans, Jesú nafni.

Með eilífri kærleiks- og friðarkveðju.

- Lifi lífið!

Höfundur er ljóðskáld og rithöfundur og aðdáandi lífsins.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga