Pistlar | 28. nóvember 2021 - kl. 12:13
Litlu og smáu kraftaverkin og blessanirnar varða veginn
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson

Okkur var aldrei lofuð auðveld ævi. Það eina sem öruggt var þegar við fengum dagsbirtuna í augun var að fyrr eða síðar myndu augu okkar bresta og hjartað hætta að slá. Það eina sem okkur var lofað var eilíf samfylgd af höfundi og fullkomnara lífsins.

Tökum eftir öllum blessununum

Það er sannarlega ómetanlegt að vera borinn áfram á bænarörmum og fá að upplifa blessanir Guðs nánast í öllum aðstæðum. En það er mikilvægt að taka eftir þeim í stóru sem smáu. Það eru ekki síst litlu kraftaverkin og blessanirnar sem varða veginn og bera okkur áfram.

Og í öllum aðstæðum er svo gott að finna stuðning frá fólki sem er andlega örlátt í vanmætti sínum og smæð. Þar sem orð og andi umlykjandi nærveru, jafnvel í fjarveru fá að streyma fram til góðs. Frá hjarta til hjarta.  Guð blessi alla sendiboðana, jarðnesku englana sem sendir eru í veg fyrir fólk til að veita umhyggju, stuðning, styrk og skjól. Þeir fylla nútíðina innihaldi og veita bjarta framtíðarsýn vegna tilveru sinnar og kærleiksríkrar nærveru með jákvæðni sinni, uppörvun og hvatningu.

Lífs akkerið í ólgusjó daganna

Þegar þyrmir yfir hugann þá er ekkert betra en að leggja áhyggjurnar og stöðuna á herðar frelsarans, Jesú, samkvæmt hans boði, sem er raunverulegur og lifandi, umhyggjusamur og nærgætinn vinur okkar og bróðir. Hans sem er lífs akkerið í dagsins ólgusjó.

Á góðum stað í Biblíunni segir: "Óttast þú ekki, því að ég er með þér. Vertu ekki hræddur, því að ég er þinn Guð. Ég styrki þig, ég hjálpa þér, ég styð þig með sigrandi hendi minni."

Valinn í lið lífsins

Hvað veist þú annars mikilvægara en að vera valinn í lið lífsins og fá að spila með til sigurs? Og þótt einstaka viðureignir kunni að tapast munum við að lokum standa uppi sem eilífir sigurvegarar vegna kærleikssigurs Jesú Krists á krossinum fyrir um tvö þúsund árum. Þegar hann svo reis upp frá dauðum á þriðja degi og tileinkaði okkur sigur lífsins með sér. Hvílík óverðskulduð óendanlega þakkarverð náðar gjöf.

Í lotningu fyrir lífinu, höfundi þess og fullkomnara segi ég því, dýrð sé Guði! Friður hans sem er ofar og æðri öllum okkar skilningi varðveiti hjörtu okkar og hugsanir og náð hans sé yfir okkur og fylgi okkur öllum. Í Jesú nafni.

Með kærleiks- og friðarkveðju.

- Lifi lífið!

Höfundur er ljóðskáld og rithöfundur og aðdáandi lífsins

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga