Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 22:22 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 22:22 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 22:22 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 22:22 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 22:22 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 22:22 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Á jólunum fæddist Jesús
í jötu hann lagður var.
Gjafir þar honum gáfu
gráhærðir vitringar.
segir Guðmund Kristjánsson frá Steinnýjarstöðum í Jólaljóðum sínum. Ljóðið hans birtist ásamt ljóðum og vísum 99 annarra skálda og hagyrðinga í ljóðasafninu Íslensk alþýðuskáld.
Jólaföstu- og jólatími verður löngum tími ljóða og annarra skáldamála. Aðventa, saga Gunnars Gunnarssonar, hefur, góðu heilli, komist á klassíska bekkinn á síðustu árum, Pétur Eggerz hefur verið að leika verk sitt eftir sögunni í Möguleikhúsinu. Í Mjóddinni, biðu svo saman eftir síðasta strætó til Selfoss á öðrum sunnudegi aðventu pistilritari og kollegi hans, Trausti Steinsson fyrrum kennari á Húnavöllum og Dalvík. Trausti var þá að koma sæll og ánægður af sýningu í Möguleikhúsinu. http://moguleikhusid.is/leiksyningar/adventa/
Annað sjónarhorn til þessa verks og hinnar köldu ferðar þremenninganna eru myndatökur Sigurjóns Péturssonar, sem fór með konu sinni og helsta samstarfsmanni, Þóru Hrönn Njálsdóttur, austur á Hólsfjöll, þar sem þau gistu nótt og nótt í sæluhúsinu við Jökulsá en þó mun oftar heima í Grímstungu. Mynd Sigurjóns af rammgerða sæluhúsi hefur orðið nokkurs konar tenging við þetta skáldverk Gunnars.
Á Blönduósi gengur lífið með venjubundnum hætti, þeir sem ekki eru lengur bundnir í fastri vinnu hittast árla dags í heita pottinum, lauginni væri nú réttara að segja og flestir fá sér sundsprett, börn og unglingar hafa skreytt skólann sinn fagurlega, fjölsótt var á öðrum sunnudegi til aðventusamkomu í kirkjunni, kór Þingeyra- og Blönduóskirkna söng, en oddvitinn í Húnavatnshreppi, Þorleifur í Sólheimum rifjaði upp glaðar minningar frá bernskujólum. Júlíus bóndi í Meðalheimi, traustur söngmaður og góður félagi varð fimmtugur á jólaföstunni. Vinum sínum, gangnamönnum og kórfélögum gerði Júlíus glaðan dag frammi í Dalsmynni og þar var mikið sungið. Heimilisiðnaðarsafnið stóð fyrir myndarlegri bókakynningu með ljúffengu súkkulaði. Þangað kom sagnfræðingurinn, Jón Þ. Þór til að minna á Húnvetninginn Valtý Guðmundsson og bók sína um hann: Dr. Valtý.
En Guðmundur frá Steinnýjarstöðum lýkur jólaljóðum sínum svo:
Gefa og þiggja gjafir
ganga í kringum tréð
og inni í hugum allra
er afmælisbarnið með.
http://bragi.info/hunafloi/ljod.php?ID=4268
Gleðileg jól!
Ingi Heiðmar Jónsson
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |