Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Föstudagur, 26. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 22:50 0 0°C
Laxárdalsh. 22:50 0 0°C
Vatnsskarð 22:50 0 0°C
Þverárfjall 22:50 0 0°C
Kjalarnes 22:50 0 0°C
Hafnarfjall 22:50 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Fréttir | 27. apríl 2015 - kl. 13:17
Markmið um ábyrga fjármálastjórn náðust

Hagnaður af rekstri samstæðu A og B hluta sveitarsjóðs Húnaþings vestra á síðasta ári nam 102 milljónum króna samanborið við 105 milljón króna hagnað árið 2013. Síðari umræða um ársreikning sveitarsjóðs Húnaþings vestra og undirfyrirtækja vegna ársins 2014 fór fram á sveitarstjórnarfundi Húnaþings vestra 16. apríl síðastliðinn og var hann samþykktur samhljóða.

Í fundargerð sveitarstjórnar kemur fram að niðurstaða aðalsjóðs var jákvæð um 86 milljónir. Rekstrarhagnaður A og B hluta fyrir afskriftir og fjármagnsliði nam 73 milljónum en afskriftir námu 43 milljónum. Rekstrartekjur voru um 84 milljónum króna hærri en ráð var fyrir gert og útsvar var 12 milljón króna hærra en í áætlun. Þá voru framlög Jöfnunarsjóðs 44 milljónum króna hærri en í áætlun og aðrar tekjur voru 28 milljónum króna hærri.

Rekstargjöld voru tæplega 12 milljónum króna hærri en áætlun ársins gerði ráð fyrir sem skýrist af mismun á bókfærðu verði og söluverði Laugarbakkaskóla og einnig af hækkun lífeyrisskuldbindinga. Almennur rekstur var undir áætlun. Fjármagnsgjöld umfram fjármagnstekjur hjá A og B hluta námu alls 12 milljónum króna samanborið við 32 milljónir árið 2013.

Í fundargerð sveitarstjórnar segir að sé litið til niðurstöðu ársreiknings ársins 2014 hafi markmið sveitarstjórnar Húnaþings vestra um áframhaldandi ábyrga fjármálastjórn náðst og sé það afar ánægjulegt. Í því samhengi megi nefna að engin ný lán voru tekin á árinu 2014.

Skuldir og skuldbindingar sveitarfélagsins á árinu 2014 voru alls 756 milljónir og hafa þær lækkað frá árinu 2013 um 4 milljónir króna. Lífeyrisskuldbindingar námu í árslok 2014 103 milljónum, langtímaskuldir 472 milljónum og skammtímaskuldir 181 milljónum. Eigið fé samstæðunnar í árslok 2014 nam 929 milljónum króna sem er um 104 milljónum króna hærra en við árslok 2013. Handbært fé í árslok 2014 var 204 milljónir en var í upphafi árs 187 milljónir og hefur það aldrei verið hærra hjá sveitarfélaginu.

Fjárfestingar ársins 2014 voru 135 milljónir samanborið við 29 milljónir árið 2013. Hlutfall veltufjár frá rekstri samstæðunnar er 14% sem er sambærilegt við árið 2013 en viðmið sem gjarnan er haft til hliðsjónar er 10%.

Hlutfall skulda og skuldbindinga af samanlögðum tekjum A og B hluta er 60% samkvæmt ársreikningi 2014 en samkvæmt viðmiðum eftirlitsnefndar sveitarfélaga skal það ekki vera hærra en 150%. Í fundargerð sveitarstjórnar kemur fram að skuldahlutfall samstæðu A og B hluta í Húnaþingi vestra hafi aldrei verið lægra frá því að reikningsskilum sveitarfélaga var breytt árið 2002 Lækkandi skuldahlutfall undanfarin ár sé grunnforsenda þess að á næstu árum verði hægt að fara í þær fjárfreku framkvæmdir sem settar hafi verið á áætlun svo sem lagningu hitaveitu til sveita og stækkun íþróttahúss. Ábyrg fjármálastjórn undanfarinna ára geri framkvæmdir af þeim toga mögulegar með lágmarks lántöku. Það sé því ljóst að staða sveitarfélagsins sé góð og í jafnvægi, segir í fundargerðinni. Stjórnendum og starfsfólki sveitarfélagsins er þakkað fyrir aðhald og skynsemi í rekstri á árinu 2014.

Þá segir í fundargerðinni: „Þrátt fyrir þessa prýðilegu niðurstöðu ársreiknings Húnaþings vestra fyrir árið 2014 er full ástæða til að vara við mögulegum áhrifum ytri þátta á framtíðarrekstur sveitarfélagsins. Þar skal sérstaklega nefna verðbólgu- og launaþróun sem og vaxtastig en þá þætti þarf sveitarstjórn m.a. að hafa í huga við ákvarðanatöku um rekstur og fjárfestingar á næstu árum. Mikilvægast er að varðveita þann góða árangur sem náðst hefur í fjármálastjórn sveitarfélagsins á síðustu árum og forðast að auka rekstrarkostnað og skuldasöfnun með tilheyrandi fjármagnsgjöldum og kostnaði. Eftirsóknarverðara er að styrkja fjárhagsstöðu sveitarfélagsins enn frekar og lækka greiðslu og vaxtabyrði eins og kostur er. Þannig er hægt að leggja grunn að aukinni getu sveitarfélagsins til fjárfestinga og framkvæmda með hag íbúanna að leiðarljósi.“

 

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið