Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 15:16 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 15:16 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 15:16 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 15:16 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 15:16 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 15:16 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Í ræðu minni á Alþingi um vegamál lagði ég áherslu á tafarlausar úrbætur á Vatnsnesvegi og fleiri sveita- og héraðsvegum í Húnavatnssýslum. Það þarf aðgerðir strax. Bílveltur á Skógarstrandarvegi, Vatnsnesvegur svo holóttur að nálgast hættumörk. Vegurinn út á Reykjaströnd ófær vegna aurs og skriðufalla. Svona mætti áfram telja. Þannig hljómuðu fréttirnar dag eftir dag í haust. Um marga þessa sveita- og héraðsvegi er þó börnum ekið daglega í skóla. Í haustmyrkri og rigningu vaðast þessir malarvegir upp í aur og holum og verða stórhættulegir og nánast ófærir.
Viðhald og endurbætur á þessum vegum hefur drabbast niður. Og þrátt fyrir góðæristal og bólginn ríkissjóð, meðal annars fyrir gjaldtöku á umferð fólks um þessa vegi, er eins og stjórnvöld séu hrokkin úr sambandi við þjóðina. Sveita- eða héraðsvegir tengja saman fólk og byggðir innan héraða og jafnvel milli landshluta og um þá er börnum ekið í skóla eða fólk sækir dagalega vinnu og nauðsynjar.
Eftir ferðir mínar undanfarna mánuði, já maður þarf að keyra vegina sem maður talar fyrir til að skilja þörfina á vegabótum, verður mér hugsað m.a. til vegarins norður í Árneshrepp, út Barðaströnd og í Örlygshöfn og Breiðuvík, um Skógarströnd, Vatnsnes, út á Reykjaströnd, Hegranesið, um uppsveitir Borgarfjarðar eða um Mýrar, inn til dala í Skagafirði og Húnavatnssýslum. Svona mætti áfram telja. Álagið á þessa vegi, lífæð byggðanna, kallar á tafarlausar aðgerðir.
Ég legg einnig til að samhliða því að afhenda þjóðinni gjaldfrjáls Hvalfjarðargöngin til ævarandi eignar á næsta ári, verði virðisaukaskatti sem veggjöldin hafa skilað til ríkissjóðs og eru líklega á bilinu 5-8 milljarðar, varið í nýtt samgönguátak á þjóðveginum vestur og norður um land sem m.a. felist í breikkun vegarins.
Það er þörf á stórátaki í vegamálum. Fjármunir og tekjustofnar eru fyrir hendi. Hvað voru þeir þingmenn að hugsa sem hleyptu fjárlögunum í gegnum þingið með stóru gati í samþykktri samgönguáætlun? Það þarf aðgerðir strax.
Bjarni Jónsson
Umræður um samgönguáætlun á alþingi 23. mars 2017
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |