Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Föstudagur, 26. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 22:43 0 0°C
Laxárdalsh. 22:43 0 0°C
Vatnsskarð 22:43 0 0°C
Þverárfjall 22:43 0 0°C
Kjalarnes 22:43 0 0°C
Hafnarfjall 22:43 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Nöldrið | 15. október 2018 - kl. 15:30
Nú myrkrið læðist að

Gaman var að heyra að menningarverðlaun DV fyrir 2017 í flokki myndlistar, voru veitt húsráðendum á Kleifum þeim Áslaugu Thorlacius og Finni Arnari Arnarssyni en þau hafa síðastliðin tvö sumur staðið fyrir frumlegum og áhugaverðum sýningum í gömlu fjárhúsunum á Kleifum. Þessi verðlaun hafa verið veitt árlega frá 1979 fyrir framúrskarandi árangur á menningarsviði. Þetta sumar, 2017 var m.a. verk á sýningunni eftir ekki ómerkari listamann en Ragnar Kjartnsson. Ábúendurnir á Kleifum ásamt skylduliði hafa hreinsað út úr fjárhúsunum og gert þau aðgengileg og má segja að þau séu nú mjög frumlegur sýningarsalur fyrir myndverk og aðrar uppákomur. Þegar ég sat á hlaðinu á Kleifum  s.l. sumar og naut veitinga í sjaldgæfum sólargeislum var umræða meðal gesta hvort ekki væri frábær hljómburður í fjárhúsunum og að gaman væri að halda þar tónleika, sem eflaust yrðu vel sóttir ekki síður en myndlistarsýningin. Til hamingju með verðlaunin Kleifabændur.

Það er mikill fengur að pistlunum hans Magnúsar Ólafssonar frá Sveinsstöðum sem koma af og til á Húnahornið. Segja má að hann sé orðinn sérfræðingur í sögunni af Agnesi og Friðriki og öllum þeim eftirmálum. Þá var fróðlegur pistillinn hans um Vatnsdalshólana. Magnús er góður penni og vonandi fær maður að lesa meira eftir hann hér á þessum síðum.

Samkvæmt gjaldskrá Blönduósbæjar er sorphirðu- og sorpförgunargjald 43.000 á ári á íbúðir og íbúðarhús í bænum og eins og segir á vef Blönduósbæjar skal tæming á tunnum fara fram á þriggja vikna fresti árið um kring. Nú hefur það komið fyrir a.m.k. tvívegis á þessu ári að aðeins önnur tunnan þ.e. pappírstunnan er tæmd á losunardegi við mitt hús. Í annað skiptið sem þetta gerðist var enginn heima þegar aðeins pappírstunnan var tæmd, en í seinna skiptið sá ég starfsmann taka pappírstunnuna og þrjá ruslapoka úr sorptunnunni og henda upp í bílinn, um leið og pappírnum var sturtað um borð.

Yfirleitt er frekar lítið í sorptunnunni hjá mér, enda erum við mjög dugleg að flokka og förum reglulega með allar plastumbúðir í gáminn á gámasvæðinu. Þrátt fyrir að sorptunnan mín fyllist ekki á þremur vikum, finnst mér ansi langt að láta heimilisúrgang bíða í einn og hálfan mánuð nánast fyrir framan húsdyrnar hjá mér, ég tala nú ekki um yfir sumarið. Við íbúarnir eru látnir greiða fyrir þessa þjónustu og þá á hún líka að vera innt af hendi á réttum tíma.

Nú er myrkrið að læðast að okkur með ógnar hraða þó ennþá séu sólbjartir dagar og mörg kvöldin hefur veri stórkostlegt að sjá sólina kveikja í Strandafjöllunum og Húnaflóanum eins og hann leggur sig, með öllum sínum litatónum. Nóg hefur verið að sýsla í bæ og sveit eins og gengur á haustin og senn tekur jólaundirbúningurinn við hjá þeim sem ekki geta beðið. Það er bæði gott og gaman að undirbúa jólin tímanlega, en þegar farið er að auglýsa jólavörur í ágúst, þá er manni eiginlega nóg boðið og slekkur á útvarpinu.

Þar til næst, kveðja Nöldri.

Höf. Nöldri
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið