Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Föstudagur, 26. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 22:46 0 0°C
Laxárdalsh. 22:46 0 0°C
Vatnsskarð 22:46 0 0°C
Þverárfjall 22:46 0 0°C
Kjalarnes 22:46 0 0°C
Hafnarfjall 22:46 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Fréttir | 20. ágúst 2019 - kl. 13:01
Gæsaveiðar hefjast í dag

Gæsaveiðitímabilið hefst í dag og stendur til 15. mars. Gildir það bæði fyrir veiðar á grágæs og heiðargæs. Um 3.-4.000 skotveiðimenn stunda gæsaveiðar að jafnaði og eru veiddir um 50-60 þúsund fuglar. Á vef Húnaþings vestra eru birtar reglur um gæsaveiði í eignarlöndum sveitarfélagsins en um er að ræða þrjú svæði, Víðidalstunguheiði, Arnarvatnsheiði og Tvídægru. Veiðimönnum með gilt skotvopnaleyfi og veiðikort útgefið af veiðistjórnunarsviði Umhverfisstofnunar geta keypt sérstakt veiðileyfi útgefið af Húnaþingi vestra og kostar hvert leyfi 9.000 krónur á dag.

Veiðileyfi eru eingöngu seld hjá Ferðaþjónustunni Dæli í síma 451 2566 eða á netfangið daeli@daeli.is.

Reglurnar:

1.  Veiðimönnum með gilt skotvopnaleyfi og veiðikort útgefið af Veiðistjórnunarsviði Umhverfisstofnunar stendur til boða að kaupa sérstakt veiðileyfi útgefið af Húnaþingi vestra er veitir þeim einum heimild til gæsaveiða í eignarlöndum sveitarfélagsins. Um verður að ræða leyfi á þrjú svæði.

Svæðin eru:  

1. Eignarhlutur Húnaþings vestra í Víðidalstunguheiði austan Víðidalsár ásamt jörðinni Öxnatungu.

2. Víðidalstunguheiði vestan Víðidalsár ásamt jörðunum Stóru-Hlíð, Stóra-Hvarfi og Króki.

3. Eignarhlutur Húnaþings vestra í Arnarvatnsheiði og Tvídægru.

2.  Hvert veiðileyfi gildir þann dag sem tilgreindur er á viðkomandi leyfi og er útgefið innan þess gæsaveiðitíma sem umhverfisráðuneytið hefur gefið út vegna ársins 2018. Leyfið veitir einungis skráðum handhafa þess heimild til veiða á umræddu svæði á áðurnefndum tíma.

3.  Verð fyrir hvert leyfi er kr. 9.000,- á dag. 

4.  Fjöldi veiðimanna á veiðisvæði er takmarkaður við 4 byssur á hverju svæði á dag og tekið skal fram að leyfishafar hafa einir heimild til veiða á umræddum svæðum.   Veiðimenn eru hvattir til að tilkynna veiðar án leyfis til eftirlitsmanns.

5.  Með vísan til 7. greinar Fjallskilasamþykktar Húnaþings vestra er óheimilt að nýta hunda og flygildi (dróna) til veiða fyrr en fyrstu göngum á viðkomandi afrétti er lokið.

6.  Fjallskiladeildir í Húnaþingi vestra hafa heimild til að loka vegum og vegslóðum sem eru á forræði sveitarfélagsins án fyrirvara ef talið er að þeir liggi undir skemmdum vegna tíðarfars og umferðar. Þannig veitir veiðileyfið ekki tryggingu fyrir því að ávallt sé hægt að aka að veiðisvæði.

Þess er vænst að veiðimenn virði það fyrirkomulag sem hér er kynnt og viðurkenni að það sé sanngjarnt og eðlilegt að greiða hóflegt gjald fyrir aðgang að náttúruauðlindum.   

Kort af veiðisvæðum má finna hér:

Gæsaveiðisvæði 1 og 2 - Víðidalstunguheiði

Gæsaveiðisvæði 3 - Arnarvatnsheiði og Tvídægra

Veiðisvæði miðast eingöngu við eignarlönd sveitarfélagsins. Athugið að nokkrar ónákvæmni gætir í kortunum, unnið er að gerð nýrra korta.

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið